Fyrir rúmum mánuði síðan kom út hinn langþráði Spore sem margir höfðu beðið lengi eftir að fá að spila. Þar sem framleiðendur leiksins eru Maxis voru margar ályktanir á því að margir aukapakkar myndu verða gefnir út fyrir leikinn, líkt og The Sims leikirnir. Þó svo að það er ekki langur tími liðinn frá því að leikurinn var gefinn út hafa Electonic Arts nú þegar tilkynnt tvær nýjar viðbætur fyrir leikinn.
Fyrri pakkinn þeirra verður í minni hlutanum og hefur hann fengið nafnið Creepy and Cute. Eins og nafnið gefur til kynna að þá mun pakkinn innihalda 100 nýja hluti fyrir verurnar sem verða annaðhvort óhugarleg eða krúttleg. Með óhugarlegu hlutunum verðu hægt að búa til veru líkt og skrímsli á meðan hinir krúttlegu hlutir munu líta út eins og einhvers konar teiknimynda fígúrur eða eitthvað tengt því. Creepy and Cute viðbótin er væntanleg þann 18. nóvember í næsta máðuð og þurfa spilendur að eiga Spore til þess að geta spilað pakkann.
Seinni viðbótin mun verða þó nokkuð stærri heldur en sá fyrri og mun hann innihalda miklar breytingar á „space“ hluta leiksins. Þá geta spilendur heimsótt aðrar plánetur og einnig farið úr geimskipum sínum og skoðað sig um á plánetunum. Hann mun innihalda ný verkefni sem spilendur geta leyst og einnig svo kallað „Adventure Creator“ þar sem leikmenn fá þann kost að búa til sín eigin verkefnið og deilt þeim með öðrum í gegnum netið. Aukapakkinn hefur ekki fengið neitt nafn ennþá en hann mun líklegast koma út næsta vor árið 2009.
Það er ljóst að ekkert verður sparað hvað varðar aukapakka fyrir leikinn og ættu aðdáendur Spore að fagna því vel.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Nýleg comment