- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Íslandsmót í FIFA 09

Nú er hafin skráning í Íslenska deild í FIFA 09, en það verður keppt
um titilinn FIFA meistari Íslands. Alls geta 32 leikmenn skráð sig í
deildina og barist um sigur. Minna mót var haldið í FIFA 08 og tókst
það afar vel, þá fór Gauidan með sigur af hólmi og vann sér inn eintak
af UEFA EURO 2008. Nú er hinsvegar enn meira lagt í mótið og allt gert
til að gera keppnina sem glæsilegasta.

Skráning er sumsé hafin og
er ætlunin að leikir milli manna hefjist um helgina. Keppnin mun svo
standa yfir í einhvern tíma.  Ef einhverjir skrá sig í mótið en eru
ekki að spila leiki þá verður þeim hent út svo að menn komist að sem
ætla sér að spila.

Íslandsmót í FIFA 09 er haldið í samstarfi við Game Tíví og PSX.is. Sá sem sigrar í keppninni fær 2 PS3 leiki, sá sem endar í
öðru sæti fær einn leik og sá sem endar í þriðja sæti fær einnig einn
leik. Ekki slæmt þegar leikir kosta jafn mikið og í dag.

Nánari upplýsingar má sjá með því að smella “hér

Kveðja,
Game Tíví

2 Responses to “Íslandsmót í FIFA 09”


Comments are currently closed.