- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for October, 2008

Næsti Elder Scrolls gæti mögulega komið út árið 2010

Bethesda fyrirtækið hefur svo sannarlega gert góða hluti undanfarið og núna er nýjasta verkið þeirra, Fallout 3 loksins kominn út á PS3, Xbox 360 og PC. Fallout 3 hefur verið að raða í sig frábærar einkunnir eða allt að 9.4 % samkvæmt Gamerankings.com sem verður að teljast ansi magnað.

Ekki bara nóg með það, því að Bethesda hafa tilkynnt það að næsti  Elder Scrolls leikur gæti hugsanlega komið út árið 2010. The Elder Scrolls IV: Oblivion hefur fengið góðar viðtökur á leikjatölvurnar og ef að allt gengur vel hjá þeim að þá má búast við því að næsti kafli komi brátt.

Þeir hyggjast halda leikjunum á PS3, Xbox 360 og PC þannig að engar áætlanir hafa verið gefnar fyrir Nintnendo Wii og ekki er víst að svo verði.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Game of the Year..?

Núna á fimmtudaginn, sama dag og næsti Game Tíví þáttur verður sýndur kemur út Fallout 3, leikur sem margir hafa beðið lengi eftir. Við hjá Game Tíví mælum 100% með þessum leik, enda gæti þetta verið einn af bestu leikjum ársins. Ef þú ert að spá í hvaða leikir eru þess virði að kaupa núna í kreppunni, þá ertu nokkuð öruggur með þennann, við mælum allavega með honum og getum ekki beðið eftir að fá hann í hendurnar :)

Í Game Tíví á fimmtudaginn

Í næsta þætti gagnrýnum við leikina Dead Space og FARCRY2, við verðum með sms leik og gefum eintök af Saints Row 2 ásamt USB-byssukúlu. Kíkjum á leikina Gears of War 2, Midnight Club LA, Motorstorm Pacific Rif, Command & Conquer 3 og margt margt fleira…

Íslandsmót í FIFA 09

Nú er hafin skráning í Íslenska deild í FIFA 09, en það verður keppt
um titilinn FIFA meistari Íslands. Alls geta 32 leikmenn skráð sig í
deildina og barist um sigur. Minna mót var haldið í FIFA 08 og tókst
það afar vel, þá fór Gauidan með sigur af hólmi og vann sér inn eintak
af UEFA EURO 2008. Nú er hinsvegar enn meira lagt í mótið og allt gert
til að gera keppnina sem glæsilegasta.

Skráning er sumsé hafin og
er ætlunin að leikir milli manna hefjist um helgina. Keppnin mun svo
standa yfir í einhvern tíma.  Ef einhverjir skrá sig í mótið en eru
ekki að spila leiki þá verður þeim hent út svo að menn komist að sem
ætla sér að spila.

Íslandsmót í FIFA 09 er haldið í samstarfi við Game Tíví og PSX.is. Sá sem sigrar í keppninni fær 2 PS3 leiki, sá sem endar í
öðru sæti fær einn leik og sá sem endar í þriðja sæti fær einnig einn
leik. Ekki slæmt þegar leikir kosta jafn mikið og í dag.

Nánari upplýsingar má sjá með því að smella “hér

Kveðja,
Game Tíví

Top5 Gears of War Vopn!

5. Hammer of Dawn – OMG POWER

4. Torque Bow – Nákvæmur + Slice & Dice

3. Longshot – HEADSHOT!

2. Gnasher – SLETTUR OG BLÓÐ!

1. Lancer – Common, vélbyssa með vélsög! Gerist ekki betra!


Nú er bara að bíða, leikurinn kemur von bráðar…..

LucasArts og BioWare kynna nýjan Star Wars leik

Fyrir tveimur vikum síðan sögðum við frá því að LucasArts og BioWare væru að vinna að nýjum leik sem þeir ættu eftir að kynna. Leikurinn var kynntur í gær og kom það í ljós að fyrirtækin tvö væru að vinna að nýjum MMO leik sem hefur fengið heitið Star Wars: The Old Republic.

Að þessu sinni verður hægt að velja tvö lið frá byrjun og heita þau Galactic Republic og svo endurhannað Sith Empire. Persónan sem þú býrð til í leiknum getur annaðhvort aðlaðast að Dark Side eða þá Light Side eins og við þekkjum úr Star Wars myndunum og verða  báðar hliðarnar aðgengilegar í báðum liðunum. Leikurinn mun gerast 300 árum áður en Star Wars: Knights of the Old Republic 2 átti sér stað sem gerir 3.500 ár frá því að fyrsta Star Wars myndin hófst.

Einnig tilkynntu þeir í dag að þeir hyggjast gera leikinn líka fyrir leikjatölvurnar en það er ekki alveg komið á hreint. Nú þegar hafa þeir bara tilkynnt PC útgáfu leiksins og verður það að koma í ljós síðar hvort þeir færa leikinn yfir á PS3 og Xbox 360.

Þeir sem fíluðu Star Wars: Knights of the Old Republic geta svo sannarlega farið að hlakka til þó biðin gæti tekið nokkurn tíma. Engin dagsetning hefur verið gefin upp ennþá en vonandi verður biðin ekki of löng.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Dead Space – MASSA leikur

Þettta verður einn flottasti leikur ársins.
Og styttist í að hann komi í búðir.

Svarthöfði og Yoda kljást loksins við hvorn annan

Namco Bandai, hönnuðir Soulcalibur IV hafa staðfest það að Darth Vader og Yoda munu loksins fá að berjast við hvorn annan í leiknum. Hver sá þetta fyrir sér? Þegar leikurinn var gefinn út var Darth Vader aðeins spilanlegur í Playstation 3 útgáfunni og Yoda var aðeins settur á Xbox 360 vélina.

Þann 23. október verða þessar goðsagnir fáanlegar á sitthvorum vélunum. Þeir sem eiga Xbox 360 þurfa að greiða 400 Microsoft stig fyrir Darth Vader í gegnum Xbox Live þjónustuna á meðan Yoda verður fáanlegur í gegnum US PSN búðina á verði 5 dollara.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

   VS  
Hvorn kýst þú frekar?

LittleBigPlanet hefur verið frestaður um heim allan

Einn flottasti Playstation 3 leikurinn hingað til er án ef LittleBigPlanet sem margir hafa beðið ansi lengi eftir. Leikurinn átti að koma út bæði í Evrópu og annarstaðar í næstu viku en svo vildi skemmtilega til að ákveðið atvik kom upp á og varð til þess að leikurinn kemur ekki út fyrr en í næsta viku.

Það sem gerði það að verkum að fresta þurfti leiknum var það að í leiknum var að finna lag sem var alls ekki gott gagnvart múslimum. Textinn í laginu vitnar í Kórarinn og þótti það alls ekki við hæfi að nefna það í tölvuleik. Lagið heitir á því skemmtilega nafni Tapha Niang og má hlusta brot úr því með því að smella “hér“.

Sony hafa ákveðið að innkalla alla leikina sem fluttir voru út til þess að geta leiðrétt þessi mistök. Þeir töldu ekki nóg að gefa aðeins út plástur heldur vildu þeir tryggja að þetta myndi fara fram á öruggan máta.

Playstation 3 eigendur þurfa því miður að bíða í eina viku í viðbót til þess að fá þennan magnaða leik. LittleBigPlanet hefur verið að fá prýðis dóma og hefur hann nú þegar hlotið tvær 10 ásamt því að vera með 95% stig á Gamerankings.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Sackboy er langt frá því að vera sáttur.

Saint’s Row 2 er kominn út..

Þá er glæpaleikurinn Saint’s Row 2 kominn út á PlayStation 3 og Xbox 360.  Hér er á ferðinni leikur í anda Grand Theft Auto leikjanna, nema hvað nú eru margir gagnrýnendur á því máli að Saint’s Row 2 sé jafnvel skemmtilegri en Grand Theft Auto IV.

Leikurinn gerist í borginni Stillwater og fara leikmenn í hlutverk klíkumeðlims sem þarf að koma klíkunni sinni aftur á kortið.

Það er hægt að breyta nánast öllu í leiknum.  Í upphafi búa leikmenn til sinn eigin karakter með öllum tiltækum ráðum og hafa til þess kerfi sem skartar fleiri milljón mismunandi möguleikum.

http://static.gamesradar.com/images/mb/GamesRadar/us/Games/S/Saints%20Row%202/Bulk%20Viewers/PS3_Xbox%20360/2008-03-04/player_customize_3--article_image.jpg

En það eru ekki bara persónur leiksins sem hægt er að breyta, heldur geta leikmenn breytt íbúðum sínum og farartækjum leiksins.

Spilun leiksins minnir um margt á Grand Theft Auto leikina, nema hvað að allt er gert til að hafa það sem skemmtilegast og fær raunveruleikinn oft að víkja fyrir skemmtanagildinu.

Töluvert er gert úr söguþræði leiksins sem einkennist af klíkustríði og yfirráðum og þurfa leikmenn að taka yfir svæði borgarinnar til að vinna leikinn.  Allan söguþráðinn er hægt að spila í coop með öðrum í gegnum netið, en þar fyrir utan geta leikmenn spilað leikinn í fjölda multiplayer möguleika.

http://media.teamxbox.com/games/ss/1861/1197586055.jpg
Upp með hendur…gamli húndur..

Það er óhætt að mæla með Saint’s Row 2, en leikurinn hefur verið að fá ótrúlega dóma, en hér að neðan eru helstu dómarnir..

“…if you’re a fan of open world games — go out and pick up a copy of Saints Row 2.”

- IGN (US) 8.2 af 10

“…everything in Saints Row 2 is over-the-top…you have the freedom to do whatever you want.”

- Worthplaying (US) 9.2 af 10

“More fun than GTA IV.”

- Gamereactor (Finland) 9 af 10

“Saints Row 2 is a sprawling sandbox overflowing with toys”

- Official Xbox 360 Magazine (Australia) 9 af 10

“Saints Row 2 is one of the most ridiculous  and enjoyable games of the year.”

- Eurogamer.net 9 af 10