Nú fer heldur betur að styttast í FIFA 09 og ætla EA að gefa út demo af leiknum sem er væntanlegt seinni part dagsins fyrir PS3. Demoið er nú þegar komið út fyrir PC og Xbox 360 útgáfurnar svo að þeir sem eiga þær vélar geta sótt þær núna.
Menn fá tækifæri til þess að spila sex lið og heita þau Marseille, Schalke, Real Madrid, Chelsea, AC Milan og Toronto FC. Útgáfurnar munu allar innihalda mismunandi leikvelli þar sem PS3 útgáfan fær FIWC Stadium leikvöllinn en Xbox 360 fær New Wembley. Aðeins verður hægt að spila upp að fjórar mínútur en vonandi verður það nóg til þess að prófa og njóta tilfinninguna sem leikurinn hefur upp á að bjóða.
Gaman er að segja frá því að þeir hafa bæði lagað og bætt við meira en 200 atriði við leikinn til þess að gera hann ennþá betri svo eitthvað sé nefnt. Við berum miklar vonir til leiksins og mikil eftirvænting ríkir við komu hans. FIFA 09 er svo væntanlegur 2. október í næsta mánuði.
Uppfært: Demoið kom út í gær svo að við hvetjum sem flesta til þess að sækja það sem fyrst og upplifa stemninguna. 
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Grafíkin lítur nokkuð vel út í FIFA 09.
Nýleg comment