Fréttamaður hjá Reuters kom að þeim orðum í dag að Nintendo væru að gefa út nýja týpu af Nintendo DS sem kæmi út áður en árið myndi líða undir lok. Nintendo vildu því miður ekki tjá sig um þetta mál og sögðu að þeir væru alltaf að hann eitthvað nýtt.
Ef þessar fréttir reynast sannar að þá mun DS vélin innihalda tónlistarspilara og það verður einnig hægt að taka myndir með vélinni. Það yrði alls ekki slæmt að fá þær viðbætur og myndi þetta auka notunargildi vélarinna ennþá meira. Nú er bara að bíða að Nintendo fari að taka til sín mála og staðfesti þetta nánar.
Nintendo mun halda blaðamannafund næsta fimmtudag svo að þetta ætti vonandi að skýrast í lok vikunnar.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví




snild