- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


EA leggja niður Tiberium

Command and Conquer aðdáendur hafa örugglega haft það gott þetta árið þar sem aukapakkinn fyrir C&C 3: Tiberum Wars  kom út, Kane’s Wrath og svo er annar væntanlegur titill í lok otkóber sem mun vera C&C: Red Alert. En það var einn annar leikur frá þeim í vinnslu sem bar nafnið Tiberium og átti hann að vera fyrstupersónu skotleikur líkt og Renegade leikurinn.

EA tilkynntu í dag hins vegar að þeir hafa hætt við leikinn og geta aðdáendur hætt við æsingnum yfir honum, ef hann var til staðar að segja. Ástæðurnar ku vera sú að hönnuðir leiksins ætluðu að reyna við eitthvað nýtt verkefni sem því miður tókst ekki. Einnig leit hann ekki nógu vel út grafíklega séð miðað við leiki nú til dags.

Þar sem allt er á leið niður í fjármálaheiminum um þessar mundir þurfa leikjafyrirtækin víst að bregðast einnig við og fórna leikjum sínum. Vonandi verða þeir ekki margir í nánari framtíð, eða kannski var þetta öllum til góðs svo að þeir geta farið og hannað betri leiki?

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

0 Responses to “EA leggja niður Tiberium”


Comments are currently closed.