- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Star Wars: The Force Unleashed demó væntanlegt á fimmtudaginn!

Spennan fer núna heldur betur að magnast! Activision Blizzard hafa staðfest það að demó úr leiknum Star Wars: Force Unleashed er væntanlegt núna á fimmtudaginn fyrir PS3 og Xbox 360 vélarnar. Menn hafa lengi beðið eftir þessum leik og fá brátt að kynnast nýrri hlið úr sögu Star Wars.

Sýnishorn úr leiknum hafa verið mjög áhugaverð og lítur allt út fyrir það að leikurinn eigi eftir að líta vel út. Við hvetjum alla að sjálfsögðu til þess að ná í demó-ið þegar það kemur út fimmtudaginn. Leikurinn er svo væntanlegur þann 19. september fyrir allar gerðir leikjatölva.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

1 Response to “Star Wars: The Force Unleashed demó væntanlegt á fimmtudaginn!”


Comments are currently closed.