Dagur 2 á leikjasýningunni í Leipzig hófst með því að Sverrir náði að bregða sér í dvergalíki, en það gerði hann í leiknum Warhammer Online sem er væntanlegur í september. Leikurinn lítur vel út og verður eflaust góð viðbót í fóru hlutverkaleikja á netinu.

Ég heiti Sverrir og ég er dvergur…harður dvergur..lítill, en harður..
Aðrir leikir sem við tékkuðum á hjá Electronic Arts fyrirtækinu voru meðal annars Fifa 09, sem er gríðarlega breyttur, en leikurinn inniheldur meira en 200 breytingar frá Fifa 08 og klárt að Fifa leikirnir eru að detta í gírinn.
Einnig sáum við leikinn Mirror’s Edge, en þessi leikur er gerður af þeim sömu og hafa gert Battlefield leikina, en Mirror’s Edge er hasar- og ævintýraleikur sem spilast í fyrstu persónu. Leikmenn fara í hlutverk hlaupara sem þarf að hlaupa um risastóra borg, berjast þar við fjölda óvina (bæði með höndum, fótum og byssum) og hoppa og skoppa um. Leikurinn kom verulega á óvart og er með frumlegri leikjum ársins.

Ó borg mín borg, ég hoppa um þín stræti….þaddna..gamla hörð..
Næst kíktum við á Godfather 2 leikinn, en hann er svipaður þeim fyrri, nema hvað nú er komið í leikinn fjöldi af “strategy” hlutum, þannig að manni líður mun meira eins og “Don”. Svo tékkuðum við á Sims 3 sem er hrikalega svakalegur og ljóst að allir hinir fjölmörgu aðdáendur Sims leikjanna mega fara að láta sig hlakka til…að síðustu kíktum við svo á Need for Speed Underground, en þessi magnaða sería bílaleikja nær sér heldur betur aftur á strik eftir 2 slappar útgáfur, og klárt að þessi Need for Speed er sönn og góð viðbót við seríuna.
Auk þessa kíktum við á Sega fyrirtækið sem sýndu okkur nýja Alien leikinn sem er væntanlegur á næsta ári…einnig sáum við Samba De Amigo á Wii, en hann ætti að geta lífgað við ömurlegustu partí…Einnig voru þeir með 2 nýja Sonic leiki, en annar þeirra Sonic Chronicles er gerður af Bioware og er hlutverkaleikur með Sonic á NDS.

Hvern hefur ekki dreymt um að vera api með sombrero hatt ?? Svalt !
Annars var sýningin troðin af þýskum nördum í dag (og þeir eru gullfallegir), en búast má við að meira en 200.000 manns komi á sýninguna að þessu sinni…

Þá er maður búinn að dressa sig upp fyrir GC leikjasýninguna, enda á að vera þar töluvert af dömum…mæður, læsið dætur ykkar inni, ég er mættur á svæðið..
Á morgun er svo síðasti dagurinn okkar á sýningunni og flytjum við ykkur fréttir á morgun hvernig það gengur.
Kveðja,
Gametíví bræður



kúl!
Frábært og skemmtilegt blogg. Endilega látið heyra í ykkur frá þriðja deginum.
"viðbót í fóru hlutverkaleikja á netinu." eigið þið ekki við flóru
hvenær kemur sonic unleashed til íslands?