Þá er fyrsta degi okkar Gametíví bræðra lokið á leikjasýninguinni í Leipzig. Sýningin er töluvert stór og allir helstu aðilarnir í tölvuleikjabransanum er harðir og á staðnum, þótt Microsoft og Nintendo sé sárt saknað, en þau fyrirtæki ákváðu að hafa aðstöðu sína með minna móti þetta árið..
Í dag settist Sverrir Bergmann harður við spilun á Wrath of the Lych King, nýja aukadisknum fyrir World of Warcraft og var gamli töluvert sáttur.

Meðal þessara nörda sat Bergmanninn og gældi við nýjustu
kvikindin í WOW..(hann á ekkert líf)
Einnig fengum við kynningu á nýju Crash Bandicoot og Spyro leikjunum og ljóst að sérstaklega Spyro á eftir að koma á óvart á árinu.
Næst lá leið okkar til Capcom fyrirtækisins, en þar missti Bergmann sig í Street Fighter IV spilakassanum, enda mikill SF aðdáandi. Óli fékk að kenna á því, enda sökkar hann þegar kemur að slagsmálaleikjum..
Meðal annarra leikja sem við sáum hjá Capcom var Dark Void og Bionic Commando, en þeir voru báðir frekar harðir og lúkka vel, en allir þessir leikir koma ekki fyrr en á næsta ári..

Dark Void verður nokkuð magnaður..með svona hendi þarf maður aðstoð með skeiningar 
Þá lá leið okkar til Sony og fengum við þar að kippa í leiki á borð við Killzone 2, sem er allsvakalegur..Resistance 2 sem er meira af því sama og svo Motorstorm 2 sem inniheldur splitscreen multiplayer og leit nokkuð vel út. Auk þessarra skoðuðum við Little Big Planet, en þann leiki binda Sony menn miklar vonir við og verður spennandi að prófa dýrið í lok október. Einnig tilkynnti Sony um nýja útgáfu af PSP (með innbyggðum hljóðnema) og að bráðlega verði gefin út 160GB PlayStation 3 tölva..

Sack Boy er aðalpersóna Little Big Planet..þar gengur allt útá að búa til sín eigin borð..
Á morgun skoðum við Electronic Arts útgáfuna, tékkum á Activision, Ubisoft, THQ, Sega of fleirum og látum ykkur vita hvernig það kemur til með að ganga..
Við munum svo sýna frá sýningunni í Gametíví sem hefst aftur 11.september..
Kveðja,
Gametíví



hah sverrir á ekkert líf X]
Þetta er snilld, spennandi leikir á leiðinni. Frábært blogg hjá ykkur, hlakka til að sjá meira.
frábært, hlakka til að fá meiri fréttir af ykkur að utan
myndinn tharna er úr bionic commando ekki dark void eins og stendur