Monthly Archive for August, 2008

Jæja, þá styttist í að Game Tíví hefjist aftur á Skjáeinum,
best að fara í geymsluna og koma Óla í hleðslu…
Dagur 2 á leikjasýningunni í Leipzig hófst með því að Sverrir náði að bregða sér í dvergalíki, en það gerði hann í leiknum Warhammer Online sem er væntanlegur í september. Leikurinn lítur vel út og verður eflaust góð viðbót í fóru hlutverkaleikja á netinu.

Ég heiti Sverrir og ég er dvergur…harður dvergur..lítill, en harður..
Aðrir leikir sem við tékkuðum á hjá Electronic Arts fyrirtækinu voru meðal annars Fifa 09, sem er gríðarlega breyttur, en leikurinn inniheldur meira en 200 breytingar frá Fifa 08 og klárt að Fifa leikirnir eru að detta í gírinn.
Einnig sáum við leikinn Mirror’s Edge, en þessi leikur er gerður af þeim sömu og hafa gert Battlefield leikina, en Mirror’s Edge er hasar- og ævintýraleikur sem spilast í fyrstu persónu. Leikmenn fara í hlutverk hlaupara sem þarf að hlaupa um risastóra borg, berjast þar við fjölda óvina (bæði með höndum, fótum og byssum) og hoppa og skoppa um. Leikurinn kom verulega á óvart og er með frumlegri leikjum ársins.

Ó borg mín borg, ég hoppa um þín stræti….þaddna..gamla hörð..
Næst kíktum við á Godfather 2 leikinn, en hann er svipaður þeim fyrri, nema hvað nú er komið í leikinn fjöldi af “strategy” hlutum, þannig að manni líður mun meira eins og “Don”. Svo tékkuðum við á Sims 3 sem er hrikalega svakalegur og ljóst að allir hinir fjölmörgu aðdáendur Sims leikjanna mega fara að láta sig hlakka til…að síðustu kíktum við svo á Need for Speed Underground, en þessi magnaða sería bílaleikja nær sér heldur betur aftur á strik eftir 2 slappar útgáfur, og klárt að þessi Need for Speed er sönn og góð viðbót við seríuna.
Auk þessa kíktum við á Sega fyrirtækið sem sýndu okkur nýja Alien leikinn sem er væntanlegur á næsta ári…einnig sáum við Samba De Amigo á Wii, en hann ætti að geta lífgað við ömurlegustu partí…Einnig voru þeir með 2 nýja Sonic leiki, en annar þeirra Sonic Chronicles er gerður af Bioware og er hlutverkaleikur með Sonic á NDS.

Hvern hefur ekki dreymt um að vera api með sombrero hatt ?? Svalt !
Annars var sýningin troðin af þýskum nördum í dag (og þeir eru gullfallegir), en búast má við að meira en 200.000 manns komi á sýninguna að þessu sinni…

Þá er maður búinn að dressa sig upp fyrir GC leikjasýninguna, enda á að vera þar töluvert af dömum…mæður, læsið dætur ykkar inni, ég er mættur á svæðið..
Á morgun er svo síðasti dagurinn okkar á sýningunni og flytjum við ykkur fréttir á morgun hvernig það gengur.
Kveðja,
Gametíví bræður
Þá er fyrsta degi okkar Gametíví bræðra lokið á leikjasýninguinni í Leipzig. Sýningin er töluvert stór og allir helstu aðilarnir í tölvuleikjabransanum er harðir og á staðnum, þótt Microsoft og Nintendo sé sárt saknað, en þau fyrirtæki ákváðu að hafa aðstöðu sína með minna móti þetta árið..
Í dag settist Sverrir Bergmann harður við spilun á Wrath of the Lych King, nýja aukadisknum fyrir World of Warcraft og var gamli töluvert sáttur.

Meðal þessara nörda sat Bergmanninn og gældi við nýjustu
kvikindin í WOW..(hann á ekkert líf)
Einnig fengum við kynningu á nýju Crash Bandicoot og Spyro leikjunum og ljóst að sérstaklega Spyro á eftir að koma á óvart á árinu.
Næst lá leið okkar til Capcom fyrirtækisins, en þar missti Bergmann sig í Street Fighter IV spilakassanum, enda mikill SF aðdáandi. Óli fékk að kenna á því, enda sökkar hann þegar kemur að slagsmálaleikjum..
Meðal annarra leikja sem við sáum hjá Capcom var Dark Void og Bionic Commando, en þeir voru báðir frekar harðir og lúkka vel, en allir þessir leikir koma ekki fyrr en á næsta ári..

Dark Void verður nokkuð magnaður..með svona hendi þarf maður aðstoð með skeiningar 
Þá lá leið okkar til Sony og fengum við þar að kippa í leiki á borð við Killzone 2, sem er allsvakalegur..Resistance 2 sem er meira af því sama og svo Motorstorm 2 sem inniheldur splitscreen multiplayer og leit nokkuð vel út. Auk þessarra skoðuðum við Little Big Planet, en þann leiki binda Sony menn miklar vonir við og verður spennandi að prófa dýrið í lok október. Einnig tilkynnti Sony um nýja útgáfu af PSP (með innbyggðum hljóðnema) og að bráðlega verði gefin út 160GB PlayStation 3 tölva..

Sack Boy er aðalpersóna Little Big Planet..þar gengur allt útá að búa til sín eigin borð..
Á morgun skoðum við Electronic Arts útgáfuna, tékkum á Activision, Ubisoft, THQ, Sega of fleirum og látum ykkur vita hvernig það kemur til með að ganga..
Við munum svo sýna frá sýningunni í Gametíví sem hefst aftur 11.september..
Kveðja,
Gametíví
Sýnishorn úr leiknum hafa verið mjög áhugaverð og lítur allt út fyrir það að leikurinn eigi eftir að líta vel út. Við hvetjum alla að sjálfsögðu til þess að ná í demó-ið þegar það kemur út fimmtudaginn. Leikurinn er svo væntanlegur þann 19. september fyrir allar gerðir leikjatölva.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví
Að þessu sinni munu þeir stefna aftur að byrjunarreit þar sem Need For Speed serían hófst. Þú framdir einhverskonar glæp sem ekki er gefinn upp og eftir það ekur þú á “Hollywood-style” bíl á miklum hraða, langt yfir hraðamörkin og situr uppi með löggurnar á hælunum.
Serían hefur heldur betur þróast síðustu árin og hafa leikirnir sjaldan verið eins. Sumir þeirra innihéldu löggur og snérust þeir um það að stinga þær af en aðrir gerðu það ekki og einbeittu meira á spyrnur og nætur kappakstur. Þetta hefur haft mikla áhrif fyrir aðdáendur leikjanna hvort þeir hafa meiri áhuga á en vonandi mun þetta brátt breytast með gömlu formúlinni, það er að segja ef hún virkar ennþá.
Need For Speed: Undercover verður gefinn út þann 21. nóvember eins og kom fram hér fyrir ofan. Leikurinn verður fáanlegur á PC, Xbox 360, PS3, PS2, PSP, Wii, DS og farsíma.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Maggie Q verður Need For Speed gellan að þessu sinni.
Graham sagði einnig að RPG serían eru mjög mikilvægir fyrir þá þar sem saga og persónu hönnun skiptir mjög miklu máli. Hann vill ekki að fyrirtækið búi til of þungan RPG leik nema að fyrirtækið sjálft ráði við það.
Square-Enix hafa gengið nokkuð vel með báða Kingdom Hearts leikina sem þeir hafa gert. Nú eru þegar tveir leikir eða fleiri í vinnslu hjá þeim þar sem einn þeirra kemur á PSP. Ekki hefur mikið heyrst frá Kingom Hearts 3 en hann mun ábyggilega skila sér þegar hann verður tilbúinn.
Disney Interactive vildu ekki staðfesta neitt hvort RPG leikur væri í vinnslu nú þegar en það mun vonandi skýrast fjótlega.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Final Fantasy og Disney persónur vinna mjög vel saman.
Þetta verður örugglega áhugaverður leikur þar sem sjálfur Will Wright, faðir simsana sýnir okkur enn á ný hvað býr í honum, hvað varðar hugmyndarflugið. Við hvetjum að sjálfsögðu sem flesta til þess að fylgjast með honum. Leikurinn er væntanlegur þann 5. september hingað í Evrópu á PC og Mac vélarnar.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Hvaða leikur þykir ykkur erfiðastur?
Kveðja,
Game Tíví
Í dag sögðu Blizzard að Diablo heimurinn á eftir að lifa áfram í öðru formi eða þá að annar leikur mun koma út á eftir Diablo 3. „Við erum ekki að segja að þetta sé endirinn af Diablo heimnum, en við erum að reyna koma sögunni að endanum. Það er ekki bara Diablo 3 – við höfum áætlanir fram fyrir hann“ sagði Jay Wilson, yfirhönnuður leiksins.
Diablo 3 verður aðeins fánlegur á PC vélarnar og Mac. Blizzard hafa samt sem áður getað hugsa sér að færa Diablo yfir á leikjavélarnar og telja þeir að það gæti komið vel út. Hvorki dagsettning né ár hefur verið gefið upp hvenær leikurinn á að koma út. Vonandi verður biðin ekki mjög lengi.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví




Nýleg comment