Monthly Archive for July, 2008
Page 2 of 2

Helstu fréttir:
Microsoft sýndu fullt af nýjum hlutum sem er væntanlegt fyrir Xbox 360, bæði á þessu ári og á því næsta. Það nýjasta sem þeir ætla að breyta er valmynd í Xbox kerfinu. Nú verður mun auðveldarar að spila tónlist, fletta í myndunum sínum og líka deila þeim með vinum. Microsoft hafa einnig gert samning við NBC Universal sem veitir þeim mörgum þáttum í gegnum sem menn geta horft á í gegnum Xbox Live.
Gaman að minnast á það að tölvuleikjabransinn er farinn að græða meira heldur en tónlistarbransinn og DVD myndir gera. Það er mjög jákvætt fyrir okkur tölvuleikja aðdáendur.
Einnig voru hellingir af leikjum tilkynntir sem koma bæði aðeins fyrir Xbox 360 og líka á hinar vélarnar og ætlum við að nefna þá hellstu hér fyrir neðan
Eingöngu fyrir Xbox 360:
Fable 2 – er loksins tilbúinn og kemur út í október á þessu ári.
Gears of War 2 – kemur 7. nóvember 08
GTA 4: Nýr kafli fyrir leikinn
Banjo-Kazooie: Nuts & Bolts – um jólin
Viva Pinata: Trouble in Paradise – um jólin
You’re in the Movies
Lips
Aðeins á Xbox Live Arcade:
UNO
Geumetry Wars 2 – næsta mánuð
Galaga Legions – næsta mánuð
Portal: Still Alive
South Park
Leikir á allar vélar:
Guitar Hero: World Tour – núna er búið að bæta við trommum
Rock Band 2 – 2. september, nú mun leikurinn innihalda 84 lög í byrjun
Leikir frá Square Enix:
Infinite: Undiscovery – 5. september, aðeins á Xbox 360
Star Ocean: The Last Hope – næsta vor árið 2009, aðeins á Xbox 360
The Last Remnant – 20. nóvember á Xbox 360, PS3 og PC
————
Square Enix áttu stóran þátt í sýningunni og sýndu nokkra væntanlega leiki frá þeim. Í lok sýningarinnar tilkynntu þeir svo væntanlegan leik sem margir hafa beðið eftir og er það enginn annar en Final Fantasy: XIII sem hafði áður bara verið áætlaður fyrir PS3. Microsoft hafa heldur betur vingast við þá munu þeir starfa áfram saman að væntanlegum leikjum.
Vonandi fengu Xbox 360 áhugamenn það sem þeir vildu úr þessari sýningu. En á morgun verða tvær sýningar í viðbótar og eru það Nintendo menn sem verða næsti og svo Sony á eftir þeim. Það verður virkilga gaman að heyra hvað kemur út frá þeim.
Kveðja,
Game Tíví
Ok, þetta er kannski ekki leikur í fullum skilningi orðsins, en fyrir þá sem fíla leiki eins og Sims og Second Life þá er þetta skref í rétta átt
Einföld leið til að útskýra þetta er: Blanda af Sims og MSN.
Þetta heitir Lively.

Hægt er að nálgast Lively ókeypis hér.



Nýleg comment