- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Lionhead hafa þrjá aðra Fable leiki í huga

Mikil eftirvænting ríkir yfir komandi leik frá Lionhed Studios og er það enginn annar en Fable 2. Mikið hefur verið rætt um hann, alveg frá því að fyrst var tilkynnt um komu hans og nú fer hann loksins að detta inn bráðum. En Fable ævintýrið mun ekki enda í Fable 2 því Peter Molyneux, yfirmaður Lionhead Studios sagði frá því að þeir hafa áætlanir fyrir þrjá Fable leiki í viðbót.

„Þetta er stór og mikil saga og þið sjáið það þegar þið spilið Fable 2, þið munuð kannast við hluti sem voru í Fable 1“ – sagði Peter Molyneux. Á E3 sýningunni sagði hann að leikurinn væri tilbúinn og þeir ættu aðeins eftir að laga nokkra galla.

Peter hyggst einnig gera íþrótta leik í framtíðinni og telur það mjög kljáandi verk. „Ég ætti að búa til íþrótta leik, bara vegna þess að sú tegund virðist vera læst í steini. Við vitum hvernig við eigum að gera íþrótta leik. Það er mikil áskorun fyrir mig. Það gildir sama með kappaksturs leiki. Það sem ég vill fá út úr leik sem ég geri næst að það verði stór áskorun“

Þetta eru svo sannarlega spennandi tímar fyrir Fable aðdáendur. Fable 2 kemur út næsta október, aðeins á Xbox 360.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

7 Responses to “Lionhead hafa þrjá aðra Fable leiki í huga”


Comments are currently closed.