- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Forstjóri Nintendo biðst afsökunnar frá E3

Forstjóri Nintendo, Satoru Iwata biðst afsökunnar á því að hafa brugðist hörðum leikjaunnendum frá E3 sýningunni sem fór fram í síðustu viku. Menn vilja meina það að Nintendo séu að fara aðra leið í
leikjabransanum og mun það bitna  á hörðum leikjaunnendum en Nintendo
telja að misskilningur sé þar á leið.

Margir höfðu einmitt beðið eftir E3 sýningunni frá Nintendo og vonast til þess að nýir leikir á borð við Zelda og Mario yrðu kynntir til leiks á ný en svo varð ekki.

Satoru Iwata telur að stór misskilningur hafi farið fram og vill gera allt til þess að sá misskilningur leysist og komist á réttan veg. Hann segir einnig að leikir á borð við Zelda og Mario taki langan tíma að gera og segir að þetta sé ekki rétta árið til þess að afhjúpa þá titila.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Satoru Iwata er miður sín á þessum misskilningi

3 Responses to “Forstjóri Nintendo biðst afsökunnar frá E3”


  • Mér finnst að Sony og Microsoft ættu að gera eitthvað svona líka xD E3 þetta árið var hræðilegt, eins og í fyrra :P

  • Nintendo ættu að skammast sín. Ekki séns að ég fái mér Wii ef ástandið batnar ekki í leikjamálum þar á bæ, aðeins nokkrir eigulegir leikir. DS ætti að duga í bili !

  • Wii eigendur: Haldið ykkur við Gamecube leiki, þeir eru miklu betri en Wii…

Comments are currently closed.