Eftir daginn í dag hafa allar 3 “Press Conferences” sýningarnar verið sýndar og skilja þær eftir miklar eftirvæntingar af leikjum sem má búast við á þessu ári og á því næsta. Við sáum glæsilega Microsoft sýningu í gær og í dag voru sýndar tvær aðrar og eru þær Nintendo og Sony sem fengu að spreyta sig að þessu sinni. Hér ætlum við að tala um Nintendo líkt við gerðum hér fyrir neðan um Microsoft sýninguna.
Wii Music gæti verið áhugavert fyrir fjölskylduna.
Hellstu fréttir:
Í byrjun sýningarinnar sýndu þeir úr snjóbretta leik sem notar stuðning við Balance Board sem fylgir með Wii. Þróunnin á brettinu lítur nokkuð vel út og verður gaman að sjá fl. leiki sem nýtir sé þann stuðning en þeir voru nokkrir á þessari sýningu.
Míkrafónn verður gefinn út fyrir tölvuna og nefnist sá hlutur Wii-Speak sem hægt verður að nota til þess að nota í ýmsum leikjum. Einnig ætla þeir að gefa út annan hlut sem hefur fengið nafnið Wii Motion Plus sem á að bæta mun meira við hreyfiskynjun fjarstýringunnar. Það var virkilega áhugavert að sjá Wii Motion Plus og lofar hann góðm viðbótum fyrir leikina.
Eingöngu á Nintendo Wii:
Shaun White Snowboarding – notar stuðnig við Wii Balance Board
Animal Crossing: City Folk – kemur út um jólin ásamt Wii-Speak
Star Wars: The Clone Wars – kemur út um jólin
Rayman Raving Rabbids: TV Party – notar stuðning við Wii Balance Board
Wii Sports: Resort – næsta vor 2009
Wii Music – kemur um jólin 2008
Eingöngu á Nintendo DS:
Spore
Viðbót fyrir Guitar Hero: On Tour
Pokémon Rangers: Shadow of Alma
Grand Theft Auto: China Town Wars – splunku nýr GTA leikur og inniheldur nýjar persónur
————
Þeir leikir sem stóðu mest upp úr á þessari sýningu voru Wii Sport: Resort og Wii Music. Með Wii Sport Resort fylgir nýr aukahlutur að heitinu Wii Motion Plus sem virtist mest áhugaverðast á Nintendo sýningunni. Því miður voru engin nýjir Mario titlar tilkynntir né Zelda sem maður hefði kannski vonast eftir en allt fór samt vel.
Annað sem kannski kom mest á óvart var Wii Music sem hefur verið nýjasta hönnun Nintendo undanförnu ár. Leikurinn skartar mörg hljóðfæri á borð við gítar, píanó fiðlu, trommum og hellingur fleirra sem hægt væri að telja upp. Til þess að spila á þau þarf maður aðeins að sveifla Wii fjarstýringunni létt í loftinu og leika eftir því hlóðfæri sem aðilinn spilar á.
Meira er það ekki frá Nintendo sýningunni. En á morgun munum við svo henda upp fréttir frá síðustu sýningunni sem mun vera Sony.
Nýleg comment