Hvað finnst þér? – sorry búið að eyða því af youtube….
Monthly Archive for June, 2008
Page 2 of 2
Nú ætla Valve að endurtaka leikinn með nýrri persónu. Næstur í röðinni verður “Pyro” sem er eldvörpumaðurinn í leiknum. Eiginleikar hans eru að sjálfsögðu eldvarpan sem hann notar til þess að kveikja í óvinum sínum og það getur verið erfitt fyrir andstæðinginn að slökkva á honum ef menn finna ekki vatn eða orkugjafa strax til þess að slökkva á honum.
Valve hafa ekki gefið upp hvað verður í boði fyrir Pyro. En það er ljóst að hann fær ný afrek líkt og gert var fyrir læknin. Ekki er vitað hvenær þessi viðbót koma út en þetta ætti að gera leikinn ennþá skemmtilegri fyrir þá sem kjósa spila sem Pyro. Viðbótin verða einungis fáanleg fyrir PC útgáfu leiksins.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Tom Clancy’s EndWar er splunku nýr leikur í seríunni sem er byggður sem herkænskuleikur. Leikurinn gerist árið 2020 þar sem Rússar hafa yfirtekið mest megnið af olíu jarðar og vitaskuld sætta Bandaríkjamenn sig ekki við það og hefst þar þriðja og síðasta heimstyrjöldin á milli þriggja ríkja sem verða í leiknum.
Það sem þykir áhugaverðast við EndWar er hvernig spilendur geta stjórnað leiknum. Hönnuður leiksins hafa gert það kleyft að menn geti stjórnað öllum leiknum með því að nota hljóðnema og stjórna öllu saman með því að tala í gegnum hann. Hægt verður að stjórna öllum aðgerðum sem fara fram, svo sem gera áras, færa herlið og allt saman með því að gefa réttar skipanir í gegnum hljóðneman. Einnig verður hægt að stjórna leiknum með mús og lyklaborði á hefðbundnan hátt en hljóðneminn hljómar virkilega spennandi og verður gaman að sjá hvernig það á eftir að koma til með að virka.
Það verður heldur betur stuð þegar leikir frá Ubisoft og öðrum fyrirtækjum fara að detta inn í haust. Tom Clancy’s EndWar bíður upp á mikla nýung í herkænskuleikjum þar sem hljóðnemi er tekinn í notkun í stað músar og lyklaborðs. Leikurinn er svo væntanlegur í haust á þessu ári á PC, PS3 og Xbox 360.
Trailer úr leiknum: SD – HD
Myndbandið frá sýningunni.
Kveðja,
Game Tíví




Nýleg comment