
Kíkið á http://eu.blizzard.com/ fyrir meira.
Allt það nýjasta í tölvuleikjunum
Ekkert nýtt hefur borist að leiknum eins og er nema það að Lara mun fá að kljást við hákarla enn á ný fyrir neðan sjávar. Það verður gaman að sjá hvernig þessi leikur á eftir að þróast á næstu kynslóðir leikjatölva sem og þær gömlu. Tomb Raider: Underworld er áætlaður í nóvember eins og fram kom hér fyrir ofan og kemur út fyrir Xbox 360, PC, PS2, PS3, Wii og DS.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Ekkert er ómögulegt fyrir okkar yndislegu, Löru Croft.

Í stuttu máli fjallar leikurinn um það að tvíburabróðir Snake’s, Liquid er kominn aftur til valda til þess að gera heiminn undir stjórn sinni og þarf Snake að leggja sig allan fram til þess að stöðva hann. Metal Gear Solid 4 er nokkuðs konar “stealth” leikur þar sem menn þurfa bæði að komast fram hjá óvinum sínum óséðir eða þá einfaldlega drepa þá á lúmskulegan hátt.
Metal Gear Solid 4 inniheldur góða grafík sem er með þeim betri sem sést hafa á PS3 leikjatölvunni. Spilunar tíminn leiksins getur tekið allt að 22 klukkustundir sem er ansi gott en leikurinn skartar mikið af myndskeiðum sem eru ótrúlega vel gerðar og ættu ekki að svíkja neinn.
Leikurinn er virkilega skemmtilegur á öllu sviðum og ætti enginn Metal Gear Solid aðdáandi að láta þennan leik framhjá sér fara. Leikurinn hefur fengið allt að 93% í dóma hjá gamerankings.com og mælum við sterklega með þessum leik fyrir alla PS3 eigendur.
Kveðja,
Game Tíví
Hér eru nokkrar umfjallanir frá eftirfarandi síðum:
Hönnuður leiksins tóku allt aðra stefnu og þeir sem hönnuðu Call of Duty 4 en þeir tóku þá ákvörðun að stefna aftur að seinni heimstyrjöldinni sem hefur farið misjafnlega vel í fólk. Það verður spennandi að sjá hvernig þeim muni takast við verkið og sjá hvernig útkoman á eftir að verða. Leikurinn er svo væntanlegur í haust á Xbox 360, PS3, PC, Wii, DS og svo PS2.
Kveðja,
Game Tíví
Hægt er að sækja tvær útgáfur á netinu af þessum pakka og heita þær Creature Creator trial version og Creature Creator Complete. “Trial version” bíður þér upp á að búa til Spor veru með takmörkuðum hlutum eða 25% af öllu saman og það kostar ekkert að ná í þann pakka. Creature Creator Complete gefur þér aðgang af öllum hlutum sem hægt er að nota við til þess að búa til Spore veru en sá pakki kostar í kringum 800 kr.
Það er virkilega gaman að búa til Spore veru út frá sínu eigin hugmyndarflugi. Miklar eftirvæntingar hafa skapast til leiksins og vonandi standast þær allar þegar sjálfur leikurinn kemur svo út þann 5. september á þessu ári.
Hér er hægt að sækja báðar útgáfurnar.
Kveðja,
Game Tíví

Hér má sjá veru sem við hönnuðum.
Nú á dögum tilkynntu Sony UK að þeir hafa áætlað að gefa út LocoRoco 2 út á þessu ári. En það er ekki alveg komið á hreint ennþá því þeir vildu ekki staðfesta þetta fullkomlega. Þessar tíðindir létta mikið við á bið leiksins og vonandi fáum við að sjá hann á þessu ári eins og tilkynnt var.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Mikil gleði ríkir í LocoRoco.
Activision tilkynntu nú á dögum tvo nýja leiki sem þeir eru að vinna að. Einn þeirra er ónefndur Spider Man leikur en hinn er splunku nýr Tony Hawk’s sem hefur fengið heitið “Tony Hawk’s Adrenaline“. Það sem einkennir þessa tvo leiki að báðir þeirra styðja við svo kallað “Balance Board”. Spider Man kemur út á Nintendo Wii en Tony Hawk’s leikurinn hefur ekki verið tilkynntur á Nintendo vélina eins og er.
Þetta gæti þýtt að Activision séu að framleiða sitt eigið bretti fyrir leikinn sem gæit komið út á PS3 Xbox 360 og kannski PC. Báðir leikirnir eru hannaðir frá grunni sem bendir til þess að eitthvað nýtt verður bætt við leikina. Ekki er vitað ennþá hvort þetta reynist satt en það verður spennandi að sjá hvernig þessi tveir leikir eiga eftir að þróast en engin dagsettning hefur verið gefin fyrir þá ennþá.
Heimildir: Joystiq

Hér er smá getraun til að kanna hversu vel þú ert að þér í gömlum tölvuleikjum,
þessi leikur kom út rétt á eftir fyrstu Rambó og Missing in Action myndunum:

Hvaða leikur er þetta þá?
Nýji aukapakkinn mun verða byggður eftir leik frá Sid Meier’s sem kom út árið 1995 sem bar titilinn Sid Meier’s Colonization. Búast má við nýjum hlutum á borð við landslagsbreytingum, ný “mod” fyrir liðin, fleiri stjórnmálaskipanir og líka betri grafík. Verkefnin í leiknum beinast að Evrópulöndum að þessu sinni þar sem spilarar þurfa að drottna yfir “Nýja Heiminum”.
Á næstu dögum kemur svo út splunku nýr leikur í seríunni og er það Civilization Revolution sem kemur aðeins út á leikjatölvurnar. Hann verður fyrst gefinn út fyrir PS3 og Xbox 360 en verður gefinn út síðar á Nintendo Wii þar sem þeir settu Wii útgáfuna í bið.
Sannir Civilization aðdáendur geta heldur betur glaðst yfir komu beggja leikjanna. Civilization IV: Colonization aukapakkinn verður gefinn út í haust aðeins á PC vélarnar. Ekki þarf að eiga upprunarlega Civilization IV leikinn til þess að geta spilað hann, heldur er nóg að innsetja hann aðeins einn og sér til þess að geta spilað leikinn.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Þetta eru ansi góðar fréttir fyrir Crysis aðdáendur því að fyrri leikurinn leit virkilega vel út á mörgum sviðum. Í komandi aukapakka fáum við að skyggjast inn í heim Sergeant Sykes, betur þekktur sem “Psycho” þar sem mikið gekk á honum í síðasta leik. Nú verða fleiri vopn og faratæki í boði og einnig verður fjölspilun leiksins tekin í gegn og hafa þeir lofað góðu varðandi hana.
Það verður spennandi að sjá meira úr Crysis Warhead þegar nær dregur að honum. Leikurinn er væntanlegur í haust og skartar góðri grafík líkt og fyrri leikurinn bauð upp á. Það hafa margir þurft að þola súrt út af hversu öflugur leikurinn er en hann mun að sjálfsögðu einungis koma út fyrir PC vélarnar.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Nýleg comment