- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Pac-Man kvikmynd á leiðinni

Já, þið lásuð rétt. Crystal Sky Picture hafa gert samning upp að 200 milljón dollara um að gera fimm bíómyndir. Af þessum fimm bíómyndum má þekkja nokkrar af þeim út frá tölvuleikjum og eru tvær af þeim Castlevania og Pac-Man?

Stóra spurningin er þessi. Hvernig í ósköpunum ætla þeir að gera kvikmynd um Pac-Man? Við höfum pællt í þessu rækilega fyrir okkur og erum næstum því orðlausir. Við vonum það allra besta, að sú mynd eigi ekki eftir að eyðileggja ímynd okkar hvernig Pac-Man lítur út í raun og veru. Crystal Sky Picture eru þegar byrjaðir á Tekken mynd í samstarfi við Sony’s Screen Gems, svo það verður einnig áhugavert hvernig hún mun verða.

Yfirleitt hefur það ekki tekist nógu vel að búa til bíómyndir út frá tölvuleikjum. Einnig er verið að gera BioShock bíómynd, en sá sem leikstýrði Pirates of the Caribbean myndunum situr uppi með það verk, þannig að hún gæti verið áhugaverð og auðvitað vonum við það allra besta.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Hvernig skildi Pac-Man kvikmynd líta út?

10 Responses to “Pac-Man kvikmynd á leiðinni”


Comments are currently closed.