- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for May, 2008

Smá getraun…

Engin verðlaun í þetta sinn,
bara heiðurinn að vera fyrst/ur til að fatta þetta.

Skrifstofa hvers er þetta, og úr hvaða leik?

Nýr Prince of Persia leikur væntanlegur

Síðustu dagar hafa verið svo kallaðir Ubisoft dagar þar sem fyrirtækið hefur sýnt úr nokkrum væntanlegum leikjum sem koma út á þessu ári og margir þeirra líta virkilega vel út. Einn af þeim verður splunku nýr Prince of Persia leikur sem mun koma út á þessu ári í kringum jólahátíðirnar.

Þeir hafa heldur betur tekið leikinn í gegn frá fyrrum Prince of Persia leikjum og mun nýr meðlimur bætast við í hópinn sem hefur fengið nafnið Elika. Hún býr undir miklum mættum og mun veita þér mikinn styrk í bardögum og mun einnig vísa þér til leiðar ef þú villist í leiknum. Elika mun verða stjórnuð með bylltingarkenntri gervigreind en því miður mun leikurinn ekki styðja við “co-op” spilun.

Prince of Persia leikirnir hafa fengið nokkuð góða dóma hingað til og ríkir mikil spenna þar til nýjasti leikurinn kemur út. Prince of Persia mun koma út um jólin á PC, Xbox 360 og PS3.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Hér má sjá nýjan teaser úr leiknum:

Vinningsnördið!

Sigurvegarinn í nörda leik Game Tíví og Blogcentral.is var hún Þórdís Helga eðalnörd sem vann samkepnina okkar og Blogcentral.is “Hversu mikið nörd ertu” Þórdís heldur úti klassa Sims hjálparsíðu hér á BlogCentral.is

Við
hjá Game Tíví og Blogcentral.is óskum henni innilega til hamingju með vinningin,
ykkur hinum sem tókuð þátt og kusuð, innilegar þakkir fyrir það. 8)

Ekki
gleyma að horfa á lokaþátt GameTivi sem verður næsta fimmtudagskvöld
þar sem verður frekari umfjöllun um þetta stórglæsilega Sims-blogg og
eiganda þess. :o


Hversu mikið nörd ertu?

GameTivi og Blogcentral kynna:

Hversu mikið nörd ertu?

Leikurinn virkar þannig:



1. Þú skrifar eina bloggfærslu um hversu mikið nörd þú ert eða þið eruð

2.
Sendið inn slóðina af nördafærslunni á mailið: info@blogcentral.is Ath”
þið hafið frest til að senda inn færslur þangað til á morgun 24.05

3. 5 Bestu nördarnir verða svo valdnir af GameTivi og Blogcentral.

4.
Kosning verður sett upp á tilkynningar.blogcentral.is þar sem þið
blogcentral fólk megið velja ykkar uppáhaldsnörd. Kosningunni líkur á
mánudaginn 26.05

5. Í lokaþætti GameTivi sem er 29.05 heimsækja
Sverrir og Óli nördið með Playstation 3 og tölvuleikjapakka…Hver vill
ekki vinna það??

Ég vil hvetja alla til að taka þátt! Það eru ekki bara brútal nördar sem eiga sjens, stelpur endilega látið ljós ykkar skína:d

Ég ætla að koma með smá dæmi:

Ég er nörd! -Af hverju?


því ég á bleika psp tölvu sem ég nota til að spila sims, bílaleiki,
snjóbrettaleiki og horfa á dvd myndir. Svo á ég líka Playstation 2 og
ég myndi tryllast úr gleði ef ég myndi fá Playstation 3 og
tölvuleikjapakka. Ég elska Singstar og get misst mig í Singstar með
kettinum minum honum Lalla fram á rauða nótt…sem syngur bakraddir.
Nágrannarnir mínir eru reyndar orðnir frekar þreyttir á mér..en hverjum
er ekki sama!?  Reyndar þá er ég búin að syngja öll lögin svo oft sem
ég á, að ég bara hreinlega verð að eignast nýja singstar leikinn8) Svo langar mig lika geðveikt í Guitar Hero svo ég geti æft mig á gítar og misst mig í rokkinu8)
Svo finnst mér Rock band líka geggjað, þá gæti ég boðið hinum
nördavinkonum mínum í heimsókn og spilað á trommur, gítar og sungið (ég
syng auðvitað)

Þannig að þetta er ekkert flókið…sendið svo slóðina af færslunni hingað: info@blogcentral.is

Pac-Man kvikmynd á leiðinni

Já, þið lásuð rétt. Crystal Sky Picture hafa gert samning upp að 200 milljón dollara um að gera fimm bíómyndir. Af þessum fimm bíómyndum má þekkja nokkrar af þeim út frá tölvuleikjum og eru tvær af þeim Castlevania og Pac-Man?

Stóra spurningin er þessi. Hvernig í ósköpunum ætla þeir að gera kvikmynd um Pac-Man? Við höfum pællt í þessu rækilega fyrir okkur og erum næstum því orðlausir. Við vonum það allra besta, að sú mynd eigi ekki eftir að eyðileggja ímynd okkar hvernig Pac-Man lítur út í raun og veru. Crystal Sky Picture eru þegar byrjaðir á Tekken mynd í samstarfi við Sony’s Screen Gems, svo það verður einnig áhugavert hvernig hún mun verða.

Yfirleitt hefur það ekki tekist nógu vel að búa til bíómyndir út frá tölvuleikjum. Einnig er verið að gera BioShock bíómynd, en sá sem leikstýrði Pirates of the Caribbean myndunum situr uppi með það verk, þannig að hún gæti verið áhugaverð og auðvitað vonum við það allra besta.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Hvernig skildi Pac-Man kvikmynd líta út?

Age of Conan

Jæja þá er hann loksins kominn, MMO leikurinn sem margir hafa beðið eftir, og svona til að hjálpa ykkur sem ætlið að spila hann núna um helgina þá hafa gaurarnir hjá AtomicGamer skrifað grein sem útskýrir hinar ýmsu hliðar leiksinns.

Greinina má nálgast hér.

Langar einhverjum í Playstation 3?

Já þið lásuð rétt:!:

Playstation 3 í verðlaun í nýja leiknum okkar “Hversu mikið nörd ertu?” á vegum Blogcentral.is og GameTivi.

Til þess að taka þátt í leiknum  “Hversu mikið nörd ertu?” þurfið þið aðeins að gera þetta:

1. Skrifa eina bloggfærslu um hversu mikið nörd þú ert eða þið eruð

2. Sendið inn slóðina af nördafærslunni á mailið: info@blogcentral.is

3. 5 Bestu nördarnir verða svo valdnir af GameTivi og Blogcentral.

4. Kosning verður sett upp á tilkynningar.blogcentral.is þar sem þið getið valið ykkar uppáhaldsnörd.

5. Í lokaþætti GameTivi heimsækja Sverrir og Óli nördið með Playstation 3 og tölvuleikjapakka…Hver vill ekki vinna það??!;)

2 vikur til stefnu..nú er bara að blogga eins og vindurinn8)

Gítar Hetja Íslands er…

Sigurvegarinn í “Gítar Hetju Íslands” var Halldór Gylfason.

Keppnin fór fram í Smárabíó síðasta laugardag þar sem færustu spilarar Íslands í Guitar Hero kepptu um fyrsta sætið til að vinna sér inn “100.000 Kr”. hvorki meira né minna. Keppendurnir sýndu mikla hörku og stóðu sig allir frábærlega vel þar sem þeir sýndu listir sýnar og feiki góða sviðsframkomur. Við viljum þakka öllum fyrir frábæra mætingu og hörku keppni og óskum við Halldóri til hamingju með titilinn.

Fjallað verður nánar um keppnina í næsta þætti af Game Tíví, á fimmtudaginn kl. 19:30

Smá getraun…

Enginn vinningur í þetta sinn,
bara smá getraun til að æfa gráu heilafrumurnar.

Úr hvaða leik er þessi litla mynd:

Sony tilkynnir væntanlega leiki

Sony America gáfu út lista nú á dögum yfir væntanlega leiki sem þeir gefa út á þessu ári og í byrjun á því næsta. Tveir leikir á listanum eru nýjir sem hafa ekki komið fram áður en það eru þeir Buzz! Master Quiz fyrir PSP og svo annar Buzz leikur, Buzz! Quiz TV. Listinn lítur nokkuð vel út og teigjir hann sig yfir sumarið og alveg fram að næsta ári.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Meðal þeirra verða Killzone 2 og LittleBigPlanet.

Listinn lítur svona út í heild sinni:

Playstation Network titlar

  • wipEout HD – Sumar
  • Elefunk – Sumar
  • PixelJunk Eden – Sumar
  • Siren: Blood Curse – Sumar

PSP leikir

  • Hot Shots Golf Open Tee 2 – Júní
  • Secret Agent Clank – Júní
  • NBA 09 – Haust
  • BUZZ! Master Quiz – Haust

PlayStation 2 leikur

  • NBA 09 – Haust

PlayStation 3 leikir

  • SOCOM: US Navy SEALs Confrontation – September
  • LittleBigPlanet – Október
  • NBA 09 – Haust
  • BUZZ! Quiz TV – Haust
  • MotorStorm Pacific Rift – Haust
  • Resistance 2 – Haust
  • Killzone 2 – Febrúar 2009