- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Tveir spennandi titlar væntanlegir í september

Það lítur allt út fyrir það að september mánuðurinn á eftir að verða dúndur góður fyrir tölvuleikja aðdáendur. Nú voru tveir spennandi leikir að bætast í hópinn og fengu september sem útgáfudag en það voru leikirnir Midnight Club: Los Angeles og svo Silent Hill: Homecoming.

Midnight Club: Los Angeles

Midnight Club leikirnir hafa verið ansi góðir hingað til og eru þrír talsins. Leikirnir skarta risa stórum borgum sem leikmenn fá að keyra um að frjálsum vilja og taka þátt í æsi spennandi keppnum, bæði á bílum og á mótorhjólum. Midnight Club: Los Angeles gerist í borg englanna eins og nafnið gefur til kynna og hafa framleiðendur leiksins, Rockstar San Diego tilkynnt það að borgin verði eins raunveruleg og hún er í raun. Nú verður hægt að breyta mun meira hvað varðar útlit bílsins og það verður gaman að sjá hvernig hann mun koma til með að líta út.

Midnight Club: Los Angeles verður fáanlegur þann 12. september á PS3 og Xbox 360. Einnig er verið að gera PSP útgáfu af leiknum.

Silent Hill: Homecoming
Þegar það kemur að spennu- og hryllingsleikjum að þá hafa Silent Hill leikirnir verið mjög ofarlega á lista. Að þessu sinni í Silent Hill: Homecoming fylgjumst við með Alex Shepherd sem er aðal söguhetja leiksins en hann leitar að bróður sínum sem hvarf á dularfullan hátt. Hlutirnir verða ekki allt það sem sýnist og Alex verður þess vegna að yfirkoma sína verstu martraðir. Konami standa að verki leiksins eins og kunnugt er en þetta er í fyrsta sinn sem Silent Hill fær að láta myrkrið sitt kljúfa yfir á nýju leikjatölvunum og það verður spennandi að sjá hvernig hann á eftir að spilast. Grafík leikins er sögð vera skelfilega flott og einnig spilar tónlistin mjög vel þar undir.
  
Silent Hill: Homecoming er einnig væntanlegur í september á þessu ári fyrir Playstation 3 og Xbox 360.

Heimildir: Eurogamer, Midnight ClubSilend Hill

Kveðja,
Game Tíví

2 Responses to “Tveir spennandi titlar væntanlegir í september”


Comments are currently closed.