
Hér má sjá hvernig Liberty City hefur breyst á 11 árum 
Jæja nóg blaður, ég er farinn aftur að spila GTA IV 
Allt það nýjasta í tölvuleikjunum

Hér má sjá hvernig Liberty City hefur breyst á 11 árum 
Jæja nóg blaður, ég er farinn aftur að spila GTA IV 
Fyrir þá sem ekki þekkja til Super Smash Bros. að þá ganga þeir út á það þegar Nintendo persónurnar koma saman og takast á við hvort annað í geysimiklum bördugum. Leikurinn skartar persónur á borð við Mario, Link, Bowser, Zeldu, Pikatchu og fullt af fleirum persónum sem berja hvort annað á hinn ótrúlegasta hátt.
Það er óhætt að segja að þessi á eftir að verða góður í Nintendo safnið þegar hann kemur út í Evrópu. Leikurinn hefur verið að fá magnaða dóma og má nefna að hann hefur fengið 94% hjá Gamerankings. Super Smash Bros. Brawl kemur sem sagt út þann 27. júní aðeins á Nintendo Wii.
Hér er listi yfir væntanlega Wii leiki í Evrópu.


Þá er loksins komið að því að gera grein fyrir því hverjir komust í úrslitakeppnina í Guitar Hero sem verður haldin í Smárabíói.
Gísli Þór Þorsteinsson
John Arnar Sveinbjörnsson
Þorlákur Björnsson
Halldór Gylfason
Kristófer Berg Sturluson
Heiðar Þórðarson
Ólafur Alexander Ólafsson
Ásgeir Helgi Þrastarson
Pétur Örn Pálmarsson
Dagur Sigurður Úlfarsson
Arnaldur Ingi Jónsson
Brynjar Sæmundsson
Við verðum svo í sambandi við keppendur varðandi frekari upplýsingar…ROCK ON!!!
Midnight Club leikirnir hafa verið ansi góðir hingað til og eru þrír talsins. Leikirnir skarta risa stórum borgum sem leikmenn fá að keyra um að frjálsum vilja og taka þátt í æsi spennandi keppnum, bæði á bílum og á mótorhjólum. Midnight Club: Los Angeles gerist í borg englanna eins og nafnið gefur til kynna og hafa framleiðendur leiksins, Rockstar San Diego tilkynnt það að borgin verði eins raunveruleg og hún er í raun. Nú verður hægt að breyta mun meira hvað varðar útlit bílsins og það verður gaman að sjá hvernig hann mun koma til með að líta út.
Midnight Club: Los Angeles verður fáanlegur þann 12. september á PS3 og Xbox 360. Einnig er verið að gera PSP útgáfu af leiknum.

Heimildir: Eurogamer, Midnight Club – Silend Hill
Kveðja,
Game Tíví
Electronic Arts hafa hinsvegar kosið að fara á mjög undarlegan hátt til þess að nálgast aukabyssur fyrir leikinn Battlefield: Bad Company. Til þess að nálgast í eftirfarandi byssur þarf fyrst að framkvæma nokkur atriði og þau hljóma nokkuð veginn svona:
Þetta eru ansi harðar kröfur til þess að nálgast allar byssur fyrir leikinn. Byssurnar voru upprunarlega í boði í Beta prufu leiksins og sagt hefur verið að þær séu öflugari en hinar sem verða í boði í upphafi.
Nokkrar byssur ættu samt sem áður ekki að eyðileggja stemmningu leiksins þótt að það væri gaman að næla sér í nokkrar þeirra. Leikurinn lítur virkilega vel út og lofar mjög góðu og sannir Battlefield spilarar ættu alls ekki að láta þennan framhjá sér fara. Battlefield: Bad Company er svo væntanlegur þann 27. júní næstkomandi á Xbox 360 og Playstation 3.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví
Það verður hægt að eyða nánast öllu því sem fram kemur í leiknum.

Það er svo sem ekkert skrýtið við stóra kynningar herferð í kringum nýja GTA leikinn, bara eins og var í kringum td. Halo 3 í bretlandi, en það sem kemur manni á óvart er að Microsoft mun standa á bak við herferðina en ekki útgefandinn Take-Two eða Rockstar sem búa til leikinn.
Ástæðan fyrir þessu er að Microsoft segir að GTA sé leikur sem sýnir yfirburði Xbox 360 vélarinnar á leikjatölvumarkaðinum, með Xbox Live möguleikunum, Achievements kerfinu og aukaefninu fyrir GTA sem verður einungis í boði fyrir Xbox 360 eigendur.
Hér má sjá mynbandið með Super Mario laginu.
Nintendo DS vélin er feiki vinsæl og verður ansi erfitt að toppa hana á markaðnum. Vélin hefur selst allt í 69.95 milljónum eintaka samkvæmt VG Charts.com og heldur áfram daginn í dag að seljast gríðarlega vel. Í mars árið 2005 kom Nintendo DS vélin út í fyrsta sinn í Evrópu en svo ári seinna, júní 2006 kom svo ný gerð sem bar nafnið DS-Lite.
Það er erfitt að segja strax til um það hvort þessar fréttir muni rætast en það kæmi ekki á óvart. Þetta eru allt saman orðrómar eins og staðan er í dag, en þá er bara að bíða og vonast til þess að allt saman rætist þegar nær dregur að E3 sýngingunni.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Það þykir mörgum gaman í DS, ekki bara mannfólkinu.
Það er ekki á hverjum degi sem maður sér svona fyrirsögn 
En þetta er nýjasti Nintendo DS leikurinn sem við Game Tíví menn erum að fíla í botn, einfaldur og skemmtilegur leikur sem þú verður að prófa ef þú átt Nintendo DS.
Þegar spilendur fengu loksins að prófa leikinn að þá fór allt í vitleysu við það hvernig maður ætti að stjórna drekanum fullkomlega. Ekki var hægt að nota stýrispinnana heldur aðeins “Sixaxis” stjórnunina sem einkennir PS3 fjarstýringuna. Menn þurftu sem sagt að snúa fjarstýringunni til og frá til þess að skipa drekanum að beygja og margt því líkt, en oft vildi drekinn ekki hlýða. Ef það er eitthvað sem á að gera leiki góða að þá verður stýringin að vera minnsta kosti í lagi.
Núna virðist eitthvað ætla að breytast. Framleiðendur leiksins ætla að gefa út uppfærslu í Japan þann 17. apríl sem gerir það kleyft að menn geti stjórnað drekanum með stýrispinnanum. Það lýtur út fyrir það að við og aðrar þjóðir fáum hana einnig í bráð og þetta ætti að breyta spilun leiksins töluvert. Tímasetningin á uppfærslunni er að vísu nokkuð furðuleg en vonandi eiga Lair aðdáendur eftir að líka vel við hana, hvort sem þeir líki vel við Sixaxis stjórnunina eða komu pinnans.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

“Vinstri, ég sagði farðu til vinstri… ekki hægri!”
Við minnum ykkur enn og aftur á leitina að Gítar Hetju Íslands!
Nýleg comment