
Nýjustu fréttir herma að í næstu útgáfu af The SIMS munu simmarnir hætta að vera svona mikilir innipúkar, og verði meiri áhersla lögð á útiveru og fleira tengt því. Einnig að hægt verði að búa til persónuleika simmanna og ótakmarkaðir möguleikar í því hvernig simminn þinn lítur út.
Monthly Archive for March, 2008
Page 2 of 2
Talandi um exclusive leiki en árið 1983 kom út leikurinn Pssst á ZX Spectrum, massa snilld á sínum tíma.
Þar spilar þú sem Robbie the robot og þarft að vernda plöntu frá hinum ýmsu skordýrum, já svona voru leikirnir í gamla daga, þetta var toppurinn á sínum tíma 
Hér er svo léleg flash útgáfa ef einhver vill prófa.

Margar deilur hafa verið um það hvort fyrstupersónuskotleikurinn Haze
myndi láta sjá sig á aðrar vélar heldur en bara Playstation 3. Hann var
áætlaður aðeins á PS3 í fyrstu en smátt og smátt komu aðrar fréttir að
koma hans gæti leynst á Xbox 360 eða PC þegar lengra á líður.
Í
upphafi var Haze meðal annars tilkynntur á PS3, Xbox 360 og PC, en svo
síðar sögðu þeir frá því að Haze myndi aðeins koma út fyrir PS3 í
ákveðinn tíma áður en þeir myndi gefa út leikinn á aðrar vélar. Ubisoft
tóku sig til í dag staðfestu það að leikurinn myndi aðeins koma út
fyrir PS3!
Það verður spennandi að sjá hvernig Haze mun lýta út
þegar hann kemur. Leikurinn mun koma út í maí næstkomandi þannig að það
er ekki langur tími þar til að við fáum að sjá hvað Ubosoft hefur að
bjóða með þessum æsi-spennandi skotleik.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Kvikmynd gerð í High Defenition með WoW leikjarvélinni, hlítur að vera áhugavert 
Smellið hér til að sjá vídeó úr henni.

Það var heldur betur fúllt fyrir Rockstar menn að fá þá höfnun og þurftu þeir einfaldlega að létta til í leiknum, það er að segja að hann var alltof grófur að mati leikjadómara. Eftir að þeir löguðu til í honum, þá loks fengu þeir að gefa út leikinn í nokkrum löndum en ekki á breskum markaði né annarstaðar í Evrópu. “The British Board of Film Classifications” stóðu fyrir því að leikurinn skildi ekki fá aðgang á breskum markaði út af því að hann væri einfaldlega of grófur.
Hæstiréttur í Bretlandi tilkynnti í dag útskurðinn í málinu og hefur nú aflétt banninu yfir leiknum. Rockstar hefur loksins fengið leyfi til þess að gefa leikinn út á breskum markaði en hann fékk aðsjálfsögðu “18+” stimpil.
Ekki er vitað samt sem áður hvenær Manhunt 2 verður svo gefinn út í Evrópu. Manhunt 2 verður gefinn út fyrst á PS2 og Nintendo Wii en svo síðar á PSP.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Manhunt 2 er stranglega bannaður innan 18 ára.



Nýleg comment