- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for March, 2008

Síðasta myndbrotið úr GTA IV

Leikurinn sem menn bíða nú
spenntastir yfir er enginn annar en Grand Theft Auto 4 leikurinn frá
Rockstar sem kemur út í næsta mánuð. GTA serían hefur staðið lengi uppi
og hafa allir leikirnir verið mjög góðir hingað til. Það sem komið
hefur fram úr nýjasta leiknum lýtur glæsilega út og sem betur fer
styttist í hann. Leikurinn átti að koma út í október í fyrra en
einhverjar tafir urðu á honum en þær eiga eftir að skila sér vel þegar
leikurinn kemur út. GTA 4 kemur út í lok næsta mánuð eða þann 29. apríl
á Xbox 360 og PS3.


Niko Bellic, aðalsöguhetja leiksins.

Í 
vikunni kom svo út síðasti trailerinn úr leiknum þar til komu hans en
hann má nálgast með því að ýta á slóðirnar hér fyrir neðan.

Myndbandið í SD gæðum.

Myndbandið í HD gæðum.

Heitir titlar væntanlegir á þessu ári

Þegar litið er yfir leikjafjöldan sem eru væntanlegir á þessu ári koma nokkuð margir til greina sem ættu að geta glatt fólk. Nokkrir leikjaútgefendur tilkynntu leiki nú á dögum sem væru væntanlegir á þessu ári og þeir hjóma ansi spennandi.

Sá leikur sem tækklaði alla grafík á síðasta ári var án efa leikurinn Crysis frá EA. Hann notast við grafíkvélina CryEngine 2 sem getur aðeins keyrt á PC tölvum í dag og þær þurfa að vera frekar góð til þess að takast á við leikinn. Á þessu ári kemur hinsvegar annar leikur sem notast við sömu grafík vél og er það enginn annar en “Far Cry 2″. Það ríkir mikil spenning yfir honum þar sem leikurinn lítur ansi vel út og hljómar mjög skemmtilega í spilun. Spilendur fá að reyka um á sléttur í Afríku algjörlega frjálsir og fá sitt eigið val hvernig þeir vilja spila í gegnum leikinn.  Far Cry 2 er væntanlegur í haust á þessu ári á PC, Xbox 360 og PS3.

Þrír heitir leikir sem eru eingöngu ætlaðir fyrir Playstation 3 fengu einnig útgáfumánuði í þessari viku og eru það Killzone 2, Little Big Planet og Resistance 2. Killzone 2 er fyrstupersónu skotleikur sem gerist í framtíðinni sem þykir æsi-spennandi að sjá. Leikurinn var kynntur áður en vélin kom út og margir hafa beðið spenntir eftir honum en talið er að hann eigi á koma út í september en framleiðendur leiksins vildu ekki staðfesta það endanlega.
Killzone 2 er áætlaður í september, aðeins á PS3.

Í Little Big Planet fá menn að hanna sitt umhverfi ásamt því að stjórna öllu sem gerist í því. Leikurinn þykir mjög undarlegur að sjá en Sony menn telja hann vera sá besti sem þeir hafa unnið að. Svo í lok á þessu ári kemur framhald af leiknum Resistance: Fall of Men en hann hefur aðeins fengið nafnið Resistance 2 eins og komið er. Ekki hefur mikð verið fjallað um þann leik en vonandi fáum við að sjá úr honum í bráð.
Little Big Planet er væntanlegur í september. Resistance 2 kemur hinsvegar í nóvember.

Leikirnir fjórir sem eru taldir upp hér fyrir ofan eru aðeins brot af því sem við fáum að smakka á þessu ári. Þessir voru eitt af þeim heitustu sem fengu útgáfudag í þessari viku. Þetta eru þeir leikir sem enginn ætti að láta framhjá sér fara.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví

Getraun

Smá getraun fyrir ykkur, engin verðlaun nema heiðurinn að vera tölvuleikjanörd 8)
Úr hvaða leik er þetta:

Svar komið 8)

The King of Kong

Um daginn buðum við þér kæri áhorfandi á sérstaka Game Tíví forsýningu á The King of Kong, frábæra heimildarmynd sem fylgist með Steve Wiebe að reyna slá heimsmetið í Donkey Kong sem Billy Mitchell setti fyrir áratugum síðan. Snilldar mynd sem allir sem hafa einhvern áhuga á tölvuleikjum hreinlega verða að sjá! Og ekki missa af símaviðtalinu okkar við Steve í Game Tíví þessa vikuna.

Halo 3 pakkinn, “Heroic Map Pack” er núna frír

Í byrjun á þessu ári gáfu Bungie út pakka að nafni “Heroic Map Pack”  fyrir Halo 3 á Xbox 360. Pakkinn inniheldur þrjú borð og heita þau Standoff, Rat’s Nest og Foundry. Þau þykja afar góð og eru tilvalin í Halo 3 bardaga.

Nú hafa Bungie menn ákveðið að gefa pakkann að kostnaðarlausu og hægt er að nálgast hann á Xbox Live Marketplace. Hann  kostaði áður 800 Microsoft stig en þeir ákvöðu að gefa hann í tilefni komu nýja pakkans sem verður gefinn út þann 15. apríl næstkomandi.

Seinni pakkinn sem kemur í næsta mánuði inniheldur einnig þrjú ný borð og heita þau Ghost Town, Avalanche og svo eitt annað sem hefur ekki verið kynnt ennþá. Sá pakki hefur fengið heitið “Legendary Map Pack” og það verður spennandi að sjá hann þegar hann verður tilbúinn.

Bungie hafa aldrei klikkað þegar það kemur að Halo og það verður svo sannarlega gaman þegar nýji pakkinn kemur út. Hann mun kosta sama og sá fyrri, eða 800 Microsoft stig.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Skjáskot úr borðinu Ghost Town sem verður í nýja pakkanum.

Einn gamall og góður – Bruce Lee


Einn af fyrstu leikjunum sem ég spilaði var Bruce Lee á gömlu góðu Commodore 64 tölvuna mína, en Commodore 64 var á sínum tíma toppurinn í tölvuleikjatölvum, belive it or not :)


Leikurinn sjálfur var frekar einfaldur, þú gast hlaupið frá hægri til vinstri, lagst niður, hoppað, kýlt og sparkað. Á hverju borði þarftu að safna lömpum og þegar þú hefur safnað nógu mörgum opnast dyr sem hleypa þér á næsta borð. Svo eru auðvitað vondir Ninja og Sumo gaurar að reyna að stoppa þig, ásamt goshverum og lasergeislum sem reyna að drepa þig.


Það sem gerir leikinn skemmtilegan og frábrugðinn öðrum leikjum á þessum tíma er að spilun leiksins er nokkuð góð, og var þetta einn af fáum fjölspilunar(multiplayer) leikjunum sem voru í boði á þessum tíma, og að leikurinn heitir Bruce Lee var ekki verra þar sem hann var hetjan mín á þessum árum :)


Leikur sem ég gef hiklaust 10 af 10 mögulegum,
leikur sem enþá er hægt að hafa gaman af.

Hér er hægt að nálgast PC útgáfu af leiknum ef þú vilt prófa.

Verðlækkun á PS3 leikjum!


Á tímum verðbólgu og verðhækkana þá er nú ekki slæmt að fá fréttir af því að það eigi að lækka verð á völdum PS3 titlum, gæti ekki komið á betri tíma, að vísu eru þetta bara 8 titlar til að byrja með, en góðu fréttirnar eru að þetta eru flestir frábærir leikir sem hafa orðið fyrir valinu.

Leikirnir eru:
- Resistance
- Genji
- F1
- MotorStorm
- Heavenly Sword
- Lair
- Folklore
- Ridge Racer 7

Nánar um verðlækkunina hér.

Guitar Hero On Tour, kynntur fyrir Nintendo DS

Fyrst þegar það fréttist af því að Activison væru að vinna að Guitar Hero leik fyrir DS komu fullt af skrítnum hugmyndum um hvernig hann ætti að lýta út. Margir bjuggu til myndir til þess að ímynda sér og spurðu sjálfan sig af því, hvernig í ósköpum fer leikurinn að því að komast fyrir á litlu lófatölvuna frá Nintendo?

Svona leit ein þeirra hugmynda út um Guitar Hero: On Tour.

En nú hafa Activision opinberað Guitar Hero: On Tour og það má segja að hann lítur nokkuð vel út. Það verður spennandi að sjá hvernig hann á til með að spilast í okkar eigin höndum. Myndband af leiknum var sett á netið og menn þurfa einfaldlega að sjá það til þess að fatta spilun leiksins.

Kveðja,
Game Tíví

Myndband af leiknum:

Red Alert 3 kemur út um jólin á þessu ári

Það þykir mjög undarlegt að hugsa sér það að herkænskuleikurinn Command & Conquer: Red Alert 3 kemur á þessu ári um jólin. Það þótti frekar óvænt og skemmtilegt að frétta af því að Red Alert 3 væri í vinnslu yfir höfuð. En nú hafa Electronic Arts staðfest það að leikurinn mun koma út á þessu ári í kringum jólahátíðarnar en ekki var búist við leiknum fyrr en á því næsta.

Í leiknum sjálfum fá spilendur að upplifa gamlar og góðar persónur á borð við “Tanya” sem hefur komið mikið fram í Red Alert seríunni. Spilendur fá þann möguleika að geta breytt tímanum með tímavél sem mun koma mikið við í sögu leiksins.

Ekki má gleyma segja frá því, enn og aftur að spilun leiksins hefur algjörlega breyst frá þeim fyrrum Command & Conquer leikjum. Red Alert 3 verður spilaður í svokölluðu “Co-Op” spilun þar sem leikmenn geta barist með vinum sínum á netinu, í gegnum sögusvið leiksins. Nú hafa þeir stefnt til hafsins og snýst hann aðalega um sjóorrustur en ekki landbardaga eins og flestir herkænskuleikir. Nýtt lið verður bætt við leikinn og fær það heitið The Empire of the Rising Sun. Allt þetta er aðeins brot af því besta sem kemur fram í leiknum segja hönnuðir leiksins og það verður spennandi að sjá meira úr honum þegar nær að dregur.

Hinir sönnu herkænsku áhugamenn ættu ekki að láta þennan leik framhjá sér fara þegar hann kemur út um jólin. Á næstu dögum mun svo koma út beta prufa fyrir Red Alert 3 en hægt verður að nálgast hana með því að kaupa Command & Conquer 3: Kane’s Wrath aukapakkann þegar hann kemur í lok mars.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví

Nintendo lofa góðum leik um jólin

Forstjóri Nintendo í Norður Ameríku, Reggie Fils-Aime var spurður af því í einum þætti af Gametrailers TV, hvort Nintendo væru með einhvern leik í vinnslu sem gæti skákað Gears of War 2 þegar hann kemur út fyrir Xbox 360. Reggie svaraði einfaldlega þessu: „Horfið á E3 sýninguna þetta ár!“

Reggie vildi voðalítið tjá sig um þau mál hvað Nintendo væru að puða þessa dagana, en það var eitt sem hann lofaði þó. „Það kemur út stór leikur í kringum jólin og það verður eitthvað sem spilendur vilja. Það eina sem ég get sagt frá er það sem við komum með á E3 þetta ár verður frábært. Leikjaunnendur eiga eftir að verða spenntir og aukning áhorfenda verður einnig spennandi að sjá“ – sagði Reggie.

Þetta er allt saman dularfullt í höndum Nintendo eins og er. Það er erfitt að geta til þess hvað Nintendo menn leyna á sér. Eitt er víst að E3 sýningin hjómar verulega spennandi og það verður virkilega gaman að fylgjast með henni í ár.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Forstjóri Nintendo í Ameríku, Reggie Fils-Aime