- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for February, 2008

Page 2 of 2

The Witcher Enhanced Edition

Samkvæmt fréttatilkynningu frá framleiðendum The Witcher er að koma ný útgáfa af þessum frábæra action/RPG leik sem við mælum hiklaust með. Nýja útgáfan inniheldur ýmsar uppfærslur og viðbætur, sem hægt er að sjá í þessu youtube vídeói (tal á pólsku en með enskum texta).

Red Alert 3 á PC, Xbox 360 og PS3

Það er óhætt að segja að Command & Conquer leikirnir hafa verið vinsælir í gegnum tíðina. Enn einn leikurinn er nú þegar í vinnslu og er það enginn annar en Red Alert 3. Electronic Arts gáfu frá sér upplýsingar um leikinn í gær og sögðu meðal annars frá því að einu liði hefur verið bætt við leikinn og nú verður hægt að spila sögu leiksins í Co-op spilun eða tveir saman.

Sagan á bakvið Red Alert 3 er sú að Soviets hafa verið að fikta með tímavél til þess að bjarga “Móður Rússlands”, en þá klikkar eitthvað og “The Empire” sem er nýja liðið í leiknum mun taka sitt til mála. Þriðja heimstyrjöldin mun svo hefjast á milli Allies, Soviets og Empire og spilendur geta svo stýrt þeim í gegnum leikinn ásamt því að spila með vinum sínum í gegnum söguna, sem er alveg nýtt í herkænskuleikjum.

Það er mikið um að vera í Command & Conquer seríunni, en næst komandi leikur mun vera aukapakkinn C&C 3: Kanes Wrath, úr Tiberium Wars heiminum og er væntanlegur í lok mars. Einnig er fyrstu persónu leikur væntanlegur og hefur hann fengið nafnið “Tiberium” og mun koma út í haust.

Ekki er vitað hvenær Red Alert 3 á eftir að koma út en leikurinn verður gerður fyrir PC, PS3 og Xbox 360.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Upptökur á Max Payne kvikmynd að hefjast

Spennið sætisólarnar: Einn af eftirminnilegustu skotleikjum síðari ára, Max Payne, mun brátt birtast á hvíta tjaldinu. Tökur á myndinni hefjast strax í mars og er búist við að þeim ljúki þann 9. maí næstkomandi. Það er þó heldur lengri bið eftir kvikmyndinni sjálfri því ekki er stefnt að því að frumsýna hana fyrr en árið 2010.

Það er enginn annar en hinn frægi leikari Mark Wahlberg sem fer með titilhlutverkið en ekki hefur enn verið rætt um hverjir aðrir muni koma fram í myndinni. Leikstjóri myndarinnar er ansi sjóaður í bransanum en hann hefur áður leikstýrt myndum á borð við Behind the Enemy Lines og The Omen.

Lítið er vitað um hvað myndin muni snúast en þó er gert fastlega ráð fyrir því að saga myndarinnar muni tengjast sögu fyrsta leiksins.

Max Payne kom fyrst út á PC árið 2001 og var þróaður af finnska fyrirtækinu Remedy Entertainment. Leikurinn hlaut lofsamlega dóma bæði gagnrýnenda sem og leikjaunnenda hvívetna og kom síðar út á Xbox, PlayStation 2, Mac og Game Boy Advance. Framhald af leiknum, Max Payne 2: The Fall of Max Payne var gefið út tveimur árum síðar.

Heimild: IGN

Kveðja,
GameTíví


Gefum meira bráðum…


Við hjá Game Tíví viljum byrja á því að óska Heiðdísi til hamingju
með Playstation 3 tölvuna og Burnout leikinn. En fyrir ykkur hin
sem tókuð þátt, þá ætlum við að vera með svipaðan leik aftur bráðum
og gefa ykkur leikjatölvu og leiki. Viljum við þakka ykkur sem
senduð okkur e-mail fyrir all það jákvæða sem þið höfðuð að segja
um þáttinn.

Spore fær útgáfudag!

Spore er einn af þeim leikjum sem menn
hafa beðið lengi eftir og loksins fer biðin brátt að enda.
Leikurinn var fyrst kynntur á GDC sýningunni árið 2005 og hefur
fengið mikla athygli eftir það. Í dag tilkynntu EA síðunni
Eurogamer það að leikurinn muni koma út á PC, Macintosh,
Nintendo DS og farsíma þann 5. september til Evrópu á þessu
ári og svo tveimur dögum seinna í USA þann 7. september. Þetta
eru góð tíðindi og virkilega gaman að heyra það að Evrópumenn
fá leikinn á undan Bandaríkjamönnum.
Það eru Maxis menn sem hanna Spore ásamt Will Wright sem er heilinn
á bakvið leikinn. Hann hefur meðal annars hannað The Sims leikina
svo eitthvað sé nefnt en sá leikur er gríðarlega vinsæll í dag um
heim allan og þekkja nánast allir til hans. Maxis hafa hannað Spore
eins konar “sandkassa líf” eins og sagt er frá, þar sem spilarar
stjórna þróun skepna ásamt því að búa til sína eigin sögu.
Það verður virkilega gaman að sjá hvernig leikurinn mun svo koma
til með að lýta út. Spore mun sem sagt koma út á PC, Macintosh,
Nintendo DS og farsíma þann 5. september 2008 í Evrópu og svo síðar
á Nintendo Wii.

Heimildir: Eurogamer
Kveðja,

Game Tíví

http://homepages.roadrunner.com/wydraz/spore/Spore_wallpaper03.jpg