Framleiðandi hasarhlutverkaleiksins Titan Quest, Iron Lore Entertainment, lokaði dyrum sínum í dag og hefur hætt allri starfsemi. Fréttirnar komu vafalaust mörgum í opna skjöldu en fyrirtækið var að aðstoða Relic Entertainment við þróun á nýjasta aukapakkanum fyrir Warhammer 40.000: Dawn of War, Soulstorm.
Iron Lore hefur að undanförnu verið að reyna að fjármagna næsta verkefni fyrirtækisins en svo virðist sem það hafi gengið of illa og var því ákveðið að hætta allri starfsemi. Þetta var tilkynnt á vefsíðu fyrirtækisins. Þar kemur einnig fram að þeir vilji þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað þá frá stofnun, allt frá fjárfestum til aðdáenda leikja þeirra. Þá kemur fram að starfsmenn fyrirtækisins séu lausir til ráðninga hjá öðrum fyrirtækjum.
Iron Lore var stofnað árið 2000 af Brian Sullivan, einum af sköpurum Age of Empires seríunnar, og Paul Chieffo. Fyrsti og eini leikur fyrirtækisins var Titan Quest, en hann var gefinn út árið 2006 og er hasarhlutverkaleikur í anda Diablo sem gerist í Grikklandi, Egyptalandi, Mesópótamíu og Kína og er innblásinn af goðsögnum úr sömu löndum. Iron Lore gaf síðar út Titan Quest viðbótina Immortal Throne, en lengra náðu þeir ekki.
Heimild: GamesIndustry.biz
Kveðja,
GameTíví




þetta eru náttla alls ekki góðar fréttir. Titan Quest er einn besti leikur sem ég hef spilað og hefði gjarnan viljað meira frá þeim.