Fjórar vikur fyrir 24. febrúar náðu Nintendo menn að skila frá sér allt að 300,000 Nintendo Wii vélum og það bara fyrir Japan. Þar seldust allt að 331,627 Wii vélar sem verður að teljast ansi magnað. Sony menn náðu einungis að selja 89,131 PS3 vélar og það vantaði mikið uppá til þess að skáka Wii. Svo virðist að Microsoft eigi ennþá í erfiðleikum að festa sér fót í Japan, en Xbox 360 tölvan seldist aðeins í 14,079 eintökum á sama tímabili og hinar leikjatölvurnar.
Eins og hér kom fram áður að slagsmálaleikurinn Super Smash Bros. Brawl sem kom þar út fyrir Ninendo Wii í lok janúar hefur mikið með þetta að segja. Hann hefur hlotið þann titil að verða fljótasti seldni Wii leikurinn hingað til og seldist hann í eitt milljón eintökum aðeins á 11 dögum. Wii Fit seldist í 309,311 eintökum á nokkrum dögum og það er enginn vafi á því að Nintendo eru að gera það gott í Japan eins og ávallt.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví

Nintendo eru að gera það gott í Japan undir stjórn forstjórans Satoru Iwata.



ég held nú að það sé að það er mjög mikill verðmunur og maður fær hreyfingu í wii og fólk skemmtir sér ábyggilega meira saman á wii en ps3. en samt pwnar* ps3 wii í öllu.