- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Enginn Smash Bros fyrr en í haust

Ef marka má nýjustu orðrómana geta Evrópubúar búist við því að spila Super Smash Bros. Brawl á Nintendo Wii í fyrsta lagi næsta haust. Þetta kom meðal annars fram í hlaðvarpi 1UP.com, 1UP Yours.

Starfsmönnum 1UP, ásamt starfsmönnum nokkurra annarra fjölmiðla, var boðið til morgunverðar með Reggie Fils-Aime, yfirmanni Nintendo í Evrópu, á GDC sem haldin var í síðustu viku. Þar spjölluðu þeir um daginn og veginn, og vitaskuld tölvuleiki fyrir leikjatölvur Nintendo.

Þegar Fils-Aime var spurður að því hvers vegna Evrópubúar fengju Mario Kart og Wii Fit á undan Bandaríkjunum sagði Fils-Aime að ástæðan væri vegna þess að Super Smash Bros. Brawl kæmi ekki út í álfunni fyrr en í haust.

Við skulum vona að Nintendo sjái að sér og gefi leikinn út í hinum árlega sumarþurrki, tímabili þar sem fáir stórir leikir koma út.

Heimild: GoNintendo

Kveðja,
GameTíví

4 Responses to “Enginn Smash Bros fyrr en í haust”


  • OOOOH ég er orðinn svo leiður á að bíða eftir þessum leik!!!!!! en ég fæ mér samt mario kart wii =D

  • damn búinn að bíða endalaust eftir þessum leik:(

  • damn þetta er öruglega geðbilaður leikur nenni ekki að bíða er hægt að spila ameríska leiki í wii ætla að kaupa hann ef það er hægt

  • Nei það er ekki hægt. Wii styður PAL kerfið þannig þú þarft að bíða þangað til hann kemur út í Evrópu…Eða bara kaupa Bandaríska Wii og leikinn af amazon.com ef þú getur alls ekki beðið.

Comments are currently closed.