Published in Uncategorized
.
Framleiðandi hasarhlutverkaleiksins Titan Quest, Iron Lore Entertainment, lokaði dyrum sínum í dag og hefur hætt allri starfsemi. Fréttirnar komu vafalaust mörgum í opna skjöldu en fyrirtækið var að aðstoða Relic Entertainment við þróun á nýjasta aukapakkanum fyrir Warhammer 40.000: Dawn of War, Soulstorm.
Iron Lore hefur að undanförnu verið að reyna að fjármagna næsta verkefni fyrirtækisins en svo virðist sem það hafi gengið of illa og var því ákveðið að hætta allri starfsemi. Þetta var tilkynnt á vefsíðu fyrirtækisins. Þar kemur einnig fram að þeir vilji þakka öllum þeim sem hafa aðstoðað þá frá stofnun, allt frá fjárfestum til aðdáenda leikja þeirra. Þá kemur fram að starfsmenn fyrirtækisins séu lausir til ráðninga hjá öðrum fyrirtækjum.
Iron Lore var stofnað árið 2000 af Brian Sullivan, einum af sköpurum Age of Empires seríunnar, og Paul Chieffo. Fyrsti og eini leikur fyrirtækisins var Titan Quest, en hann var gefinn út árið 2006 og er hasarhlutverkaleikur í anda Diablo sem gerist í Grikklandi, Egyptalandi, Mesópótamíu og Kína og er innblásinn af goðsögnum úr sömu löndum. Iron Lore gaf síðar út Titan Quest viðbótina Immortal Throne, en lengra náðu þeir ekki.
Heimild: GamesIndustry.biz
Kveðja,
GameTíví

Published in Uncategorized
.
Fyrir stuttu afhjúpaði Konami Metal Gear Solid: The Essential Collection fyrir PlayStation 2, en það er pakki sem inniheldur Metal Gear Solid, Metal Gear Solid 2: Substance og Metal Gear Solid 3: Subsistence í einum ódýrum (30 dollara) pakka. Núna hefur fyrirtækið staðfest að Metal Gear Solid mun ekki vera upprunalega PSOne útgáfan sem kom út á tveimur diskum heldur er þetta PlayStation 2 útgáfa af leiknum á einum disk.
Nýja portið mun því gleðja marga sem höfðu óttast að þeir þyrftu að grafa upp gömul PSOne minniskort til þess að vista leikinn eða skipta um disk í miðjum hasar. Því miður mun leikurinn þó ekki innihalda neitt nýtt, hvort sem um er að ræða innihald eða útlit, svo við munum ekki sjá eitthvað í líkingu við Metal Gear Solid: The Twin Snakes sem kom út á GameCube fyrir nokkrum árum.
Það er þó lítil ástæða fyrir okkur evrópubúa að fagna því Konami hefur ekki enn staðfest Evrópska útgáfu á þessum pakka – ef við fáum hann nokkurn tímann. Við skulum þó vona að hann rati á endanum til Evrópu enda alveg hreint frábær pakki á frábæru verði.
Annars er það að frétta af Metal Gear Solid 4: Guns of the Patriot að Sony í Ameríku hafa staðfest að leikurinn komi út á öðrum ársfjórðungi þessa árs (á milli apríl og júní). Það er þó óvíst hvenær Evrópa fær leikinn… en ef Konami efnir loforð sín um MGS tengda tilkynningu á morgu þá ættum við ekki að þurfa að bíða lengi eftir útgáfuramma.
Uppfært: Svo virðist sem misskilningur hafi átt sér stað hjá Konami hvað portið varðar. Núna hafa Konami í Bandaríkjunum staðfest að leikurinn MUNI koma út á tveimur geisladiskum eins og upprunalega útgáfan, að það þurfi að skipta um disk í miðjum klíðum og að fólk þurfi að grafa upp gamalt PSOne minniskort til þess að vista. Úps.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví

Published in Uncategorized
.
Ef marka má nýjustu orðrómana geta Evrópubúar búist við því að spila Super Smash Bros. Brawl á Nintendo Wii í fyrsta lagi næsta haust. Þetta kom meðal annars fram í hlaðvarpi 1UP.com, 1UP Yours.
Starfsmönnum 1UP, ásamt starfsmönnum nokkurra annarra fjölmiðla, var boðið til morgunverðar með Reggie Fils-Aime, yfirmanni Nintendo í Evrópu, á GDC sem haldin var í síðustu viku. Þar spjölluðu þeir um daginn og veginn, og vitaskuld tölvuleiki fyrir leikjatölvur Nintendo.
Þegar Fils-Aime var spurður að því hvers vegna Evrópubúar fengju Mario Kart og Wii Fit á undan Bandaríkjunum sagði Fils-Aime að ástæðan væri vegna þess að Super Smash Bros. Brawl kæmi ekki út í álfunni fyrr en í haust.
Við skulum vona að Nintendo sjái að sér og gefi leikinn út í hinum árlega sumarþurrki, tímabili þar sem fáir stórir leikir koma út.
Heimild: GoNintendo
Kveðja,
GameTíví

Published in Uncategorized
.
Nintendo eru búnir að smella enn einni rósinni í virtual console happagatið sitt. Það er ekki langt síðan fyrstu NeoGeo leikirnir birtust á Virtual Console, verslun Nintendo með klassíska tölvuleiki, og núna hafa þeir tilkynnt að Commodore 64 leikir muni verða aðgengilegir í Evrópu innan skamms.
Í fyrstu verður eingöngu boðið upp á Commodore 64 leiki í Evrópu en líklegt þykir að þeir muni einnig vera aðgengilegir bandarískum Wii eigendum síðar meir. Fyrstu leikirnir ættu að detta inn einhvern tímann á árinu og munu þeir koma til með að kosta 500 Wii punkta.
Það eru leikirnir Uridium og International Karate sem munu koma út til að byrja með. Sá fyrrnefndi er klassískur shoot ‘em up leikur í ætt við Raiden en sá síðarnefndi er tvívíddur bardagaleikur sem gæti vel verið andlegur forveri Street Fighter.
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví

Published in Uncategorized
.
Reynir Harðarson hjá CCP Games hefur líklega aðra sýn á fjölspilunarleiki en aðrir framleiðendur. Hann trúir að framleiðendur eigi ekki að hugsa um slíka leiki sem nokkurra ára verkefni, heldur nokkurra áratuga verkefni. Reynir treystir á það að EVE Online gæti svo sannarlega náð þeim árangri að bæta sífellt við einhverju nýju og enst þannig ansi lengi.
“Við munum bara halda áfram að byggja ofan á hann,” sagði Reynir í viðtali við leikjabloggið videogaming247. “Fjölspilunarleikir þurfa ekkert að eldast. Það sem einkennir leiki á borð við EVE Online er að þeir þurfa engin framhöld – af hverju ættu þeir ekki að endast í rúma hálfa öld?”
EVE Online er sífellt að stækka og nú fyrir nokkru kom út nýr plástur sem bætti heilmiklu við leikinn ásamt því að þeir sem vildu gátu uppfært alla grafík leiksins til þess að geta notið góðs af öllum hinum nýja vélbúnaði sem hefur hlaðist inn á markaðinn undanfarið ár eða svo. CCP Games ætla sér að halda áfram að þróa EVE Online út í ystu æsar og meðal þess sem að notendur munu geta gert á næstu árum er að labba um í geimstöðvum og því fara samskiptin ekki lengur eingöngu í gegnum skipin heldur andlit til andlits við aðra leikmenn.
EVE Online er þó ekki eini leikur CCP því þeir eru að vinna að leik sem byggður er á World of Darkness spunaspilinu. Það verður fróðlegt að sjá hvernig sá leikur verður en þónokkur ár eru í að hann verði tilbúinn…
Heimild: videogaming247
Kveðja,
GameTíví

Hvernig skyldi EVE Online líta út eftir 50 ár?
Published in Uncategorized
.
Þeir sem voru að vonast eftir að geta látið Mario og Pikachu berjast sín á milli á Nintendo DS geta gefið vonir sínar á bátinn því faðir Super Smash Bros. seríunnar, Masahiro Sakurai, segir DS útgáfu af bardagaleiknum æðislega vera á dagskrá.
Vandinn felst ekki í því að leikurinn muni ekki virka, þvert á móti myndi hann ganga ansi vel upp. Hann sér sig hins vegar ekki fyrir sér vinna að slíku verkefni.
“Miðað við þær viðtökur sem stjórnskemað í (Super Smash Bros.) Brawl, þar sem Wii fjarstýringin er notuð á hlið, hefur fengið þá hefta stýringarnar ekki möguleikann á útgáfu fyrir Nintendo DS,” sagði Sakurai í viðtali við IGN. “En ég sé sjálfan mig ekki vinna að slíku verkefni.”
Það er þó ekki öll von úti. “Ef Nintendo ákveður að þeir vilji gera Super Smash Bros. fyrir DS þá er það þeirra verk að ákveða hvernig og hvenær og á hvaða hátt þeir myndu fara í slíkt verkefni,” bætti Sakurai við.
Með öðrum orðum eru engin plön að gefa leikinn út fyrir Nintendo DS í bráð, en það er alls ekki hægt að útiloka slíkan leik ef Nintendo kýs að gera hann. Ekki er óalgengt að það séu mismunandi starfsmenn sem vinni að lófaleikjatölvuútgáfu vinsælla leikja.
Heimild: IGN
Kveðja,
GameTíví

Kannski einhvern tímann á DS. Bara ekki núna.
Nýleg comment