Valve fyrirtækið tilkynnti nú á dögum að þeir ætli að gefa út tvö ný borð fyrir Team Fortress 2 leikinn, en hann er einn af fimm leikjum úr hinum geysi vinsæla Orange Box pakka sem var gefinn út síðasta október.
Eitt af borðunum tveimur hefur fengið nafnið "Badlands" en það verður endurgert úr fyrri leiknum Team Fortress Classic's sem taldist besta borðið í þeim leik. Badlands er staðsett í fjöllum eða hlíðum sem inniheldur tvær bækistöðvar sem sitthvort liðið byrjar í. Ekki er vitað hvernig hitt borðið mun líta út en vonandi verður það skemmtilegt.
Fyrir þá sem þekkja ekki til Team Fortress 2 þá fjallar þetta um tvö lið sem eru gegn hvort öðru, rautt og blátt. Spilendur þurfa svo að velja sér hóp eða menn sem henta hverjum bardaga að sinni sem hver maður inniheldur nokkur brögð til að sigrast á andstæðingum sínum.
Það er óhætt að segja að Orange Box sé einn sá besti pakki sem hefur verið gefinn út í upphafi tölvuleikja. Pakkinn inniheldur fimm leiki eða Half Life 2, Episode 1 og Episode 2, Portal og Team Fortress 2. Orange Box hefur verið að fá frábæra dóma um heim allan og við fengum meðal annars BT nördið til þess að dæma leikinn fyrir okkur og fékk hann hvorki meira né minna en "10" hjá okkur í Game Tíví.
Búist er við því að borðin tvö komi út innan tveggja mánaða fyrir PC en ekki er vitað hvenær þau koma út fyrir Xbox 360 eða PS3.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
Game Tíví







Nýleg comment