Íslenski leikjaframleiðandinn CCP Games og hið víðfræga fyrirtæki Valve hafa komist að samkomulagi um dreifingu á fjölspilunarleiknum EVE yfir Steam leikjaveituna. EVE Online verður því fyrsti leikur sinnar tegundar til þess að notfæra sér Steam.
Fjöldi áskrifenda í leiknum hefur rokið upp á undanförnum árum og hefur leikurinn nú meira en 200.000 áskrifendur. Það má þó búast við að nokkrir muni bætast við þegar leikurinn fer í dreifingu yfir Steam því 13 milljónir manna um allan heim notfæra sér þjónustuna. Ekki skemmir fyrir að notendur Steam fá 21 dags prufureikning og ef þeir hafa áhuga á að kaupa áskrift fá þeir fimm dollara afslátt af fyrsta mánuðinum sínum. Ekki slæmur díll.
EVE Online er væntanlegur á Steam á næstu vikum.
Heimild: Evil Avatar
Kveðja,
GameTíví



0 Responses to “EVE Online stefnir á Steam”