- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Devil May Cry demó á PSN og Xbox Live í dag!

Capcom hafa loksins staðfest útgáfudag á Devil May Cry 4 demóinu… og það kemur í dag, fimmtudag! Demóið skartar vitaskuld nýju aðalpersónunni, Nero, og ætti að gefa leikspilendum nokkuð góða innsýn inn í bardagakerfi leiksins. Kerfið er smíðað í kringum vopn Nero, "Devil Bringer," og með því eiga þeir að gera ýmis brögð til þess að yfirbuga óvini sína á sem skilvirkastan hátt.

Devil May Cry 4 er fjórði (duh) leikurinn í hinni ágætu Devil May Cry seríu. Hingað til hefur þó önnur persóna, Dante, setið við stýrið en eitthvað fékk Capcom til þess að skipta um bílstjóra og í staðinn verður Dante óvinur í leiknum. Spes.

Devil May Cry 4 olli miklu fjaðrafoki um árið þegar ákveðið var að færa leikinn yfir á Xbox 360 og PC en upphaflega var áætlað að hann kæmi eingöngu á PlayStation 3. Margir aðdáendur seríunnar hreinlega suðu upp af reiði þegar að þessu kom og litu á þetta sem svik við sig. Það eru þó eflaust margir sem eru sáttir við þessa nýju breytingu og loksins munu spilendur fá að njóta góðs af þessum ávexti þegar demóið kemur út á morgun.

Demóið verður hægt að nálgast á PSN í gegnum PS3 eða Xbox Live í gegnum Xbox 360.

Heimildir: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

 

Það vantar ekki blóðið í Devil May Cry 4.

1 Response to “Devil May Cry demó á PSN og Xbox Live í dag!”


  • he one decent game crushed into tiny bits….
    mér langar að dante verður með Nero í leiknum enn ekki óvinurinn…enn égheld að nero er að reyna að drepa dante enn eitthvað kemur uppá svo að þeir þurfa að teama up og bjarga heimunum saman

Comments are currently closed.