- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Best seldi leikur ársins 2007 kynntur

Einn flottasti skotleikurinn í dag er án efa leikurinn Call of Duty 4: Modern Warfare sem var gerður af Infinity Ward en þeir gerðu einnig fyrsta leikinn og þann númer tvö. Leikurinn fékk þann heiður að verða best seldi leikurinn árið 2007 og verður það að teljast ansi magnað. Samkvæmt könnunun sem voru gerðar af rannsóknarhópum NPD, Charts-Track og Gfk, en þeir tilkynntu það að leikurinn hefur selst yfir 7 milljón eintaka um heim allan síðan hann var gefinn út síðastaliðin nóvember.

Activision sem gefa leikinn út voru mjög ánægðir með þessar tölur. Sumir telja að Call of Duty 4 sé einn sá besti leikur sem hefur komið út hingað til. En þeir eru ákveðnir í því að halda þessari seríu lengi uppi en næsti leikur, Call of Duty 5 mun vera gerður af "treyarch" en þeir gerðu einmitt leik númer 3 sem varð víst lakasti leikurinn í seríunni. Ásamt því ætla þeir að hefja leikinn á gamla tímanum enn einu sinni eða í seinni heimstyrjöldinni. En það verður bara að bíða og sjá hvernig það mun koma út.

Call of Duty 4: Modern Warfare hefur fengið mjög góða dóma nánast allstaðar og fær 93% að meðaltali hjá Gamerankings. En leikurinn gerist í nánari framtíð en allt er í band og brjálaði í mið-Evrópu ríkjunum þar sem hryðjuverkamenn eru með mikil völd. Þú ferð í hlutverk sérsveitamanna Breta "SAS" ásamt því að vera Bandarískur fótgönguliði í hernum þar. En það er þitt komið að enda þetta stríð þar sem ógn ríkir nánast allstaðar í heiminum.

Leikurinn er fáanlegur á PC, PS3, Xbox 360 og Nintendo DS. Síðar mun leikurinn svo koma út á Macintosh.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


Drífum okkur. Við verðum að kaupa leikinn áður en hann selst aftur upp!

2 Responses to “Best seldi leikur ársins 2007 kynntur”


  • mér skilst að halo 3 hafi nú selst í yfir 8 milljón eintökum :/

  • Klárlega bitur XBOX aðdáandi. COD 4 er miklu betri en halo 3.

    Á titilinn sannarlega verðskuldaðan en ég er mjög fúll yfir því að seinni heimsstjyrjöldin verði þemað í næsta leik. Algjörlega ofnotað stríð.

Comments are currently closed.