Ef marka má japanska tímaritið Famitsu þá verður biðin eftir slagsmálaleiknum Super Smash Bros. Brawl fyrir Nintendo Wii svo sannarlega þess virði. Leikurinn hefur nefnilega hlotið hæstu einkunn hjá tímaritinu, 40 stig af 40 mögulegum, og er sjöundi leikurinn í sögu tímaritsins til að hljóta svo háa einkunn.
Aðrir leikir sem hafa hlotið sömu einkunn eru The Legend of Zelda: Ocarina of Time á Nintendo 64, Soul Calibur á Dreamcast, Vagrant Story á PlayStation, The Legend of Zelda: Wind Waker á GameCube, Nintendogs á Nintendo DS og Final Fantasy XII á PlayStation 2.
Fyrir þá sem ekki þekkja til Super Smash Bros. leikjanna þá eru það leikir frá Nintendo þar sem frægar Nintendo persónur berjast við hvora aðra og beita lúalegum brögðum til að ná yfirhöndinni. Meðal persóna sem munu birtast í Super Smash Bros. Brawl eru Mario úr Super Mario, Link úr Legend of Zelda, Pit úr Kid Icarus, og Kirby úr samnefndum leikjum. Þá munu einnig hinn gamli andstæðingur Mario frá gömlu Sega Mega Drive dögunum, Sonic the Hedgehog, verða spilanlegur í Super Smash Bros. Brawl ásamt harðjaxlinum Solid Snake úr hinum frábæru Metal Gear Solid leikjum.
Því miður hefur engin dagsetning verið fest á leikinn hér í Evrópu, en þeir sem hyggjast kaupa hann inn frá Ameríku eru svo sannarlega heppnir því hann er væntanlegur þar í álfu 9. mars næstkomandi.
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví
Nýleg comment