Það er aldrei leiðinlegt að fá stóra pakka í jólagjöf sem inniheldur leikjatölvur eða annað slíkt. Síðustu jól kom einmitt leikjavélin Nintendo Wii á markaðinn í fyrsta sinn og rauk hún þar á meðal á toppinn sem mest selda leikjavélin yfir jólin í fyrra. En það virðist nú vera að endurtaka sig þessi jól aftur.
Þegar jólakaupin stóðu yfir þessi jól seldu Amazon hvorki meira né minna en 17 Wii tölvur á aðeins einni sekúndu og verður það að teljast ansi gott, enda er desember einmitt sá mánuður sem fyrirtækin selja mest af tölvum sínum og leikjum. Það verður gaman að sjá niðurstöður hjá Nintendo, Microsoft og Sony hvað hver vél seldist mikið yfir jólahátíðina.
Nintendo Wii er nú sem stendur á toppnum yfir mest seldu leikjavélar í dag og fylgir X-Box 360 þar á eftir. Svo í því þriðja er Playstation 3 vélin sem hefur heldur betur aukið við sig í sölu og verður gaman að sjá meira af þessu stíði þegar lengra á líður.
Heimildir: Joystiq
Kveðja,
Game Tíví

Fólk hefur ekki verið lengi að grípa í eina Wii vél yfir jólakaupin.



Já há enda er þessi talva ekki rusl af nintendo tölvu að vera.
Það er góð grafík í henni allavega Bróðir minn fékk nintendo wii og hann lýkar hana eins og það er fyndið ef maður gerir mii kalla í tölvunni en ég fékk reyndar psp 2 eða psp slim and lite. og er hún líka mjög góð. en að mínu mati er nintendo wii einn af þessum góðu.
http://www.blog.central.is/-sims2-myndir-
það eru komnir níjir eigendur
mæli með að fólk kíki og taki þátt í kepnini