- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for December, 2007

Amazon selja 17 Wii vélar á aðeins einni sekúndu

Það er aldrei leiðinlegt að fá stóra pakka í jólagjöf sem inniheldur leikjatölvur eða annað slíkt. Síðustu jól kom einmitt leikjavélin Nintendo Wii á markaðinn í fyrsta sinn og rauk hún þar á meðal á toppinn sem mest selda leikjavélin yfir jólin í fyrra. En það virðist nú vera að endurtaka sig þessi jól aftur.

Þegar jólakaupin stóðu yfir þessi jól seldu Amazon hvorki meira né minna en 17 Wii tölvur á aðeins einni sekúndu og verður það að teljast ansi gott, enda er desember einmitt sá mánuður sem fyrirtækin selja mest af tölvum sínum og leikjum. Það verður gaman að sjá niðurstöður hjá Nintendo, Microsoft og Sony hvað hver vél seldist mikið yfir jólahátíðina.

Nintendo Wii er nú sem stendur á toppnum yfir mest seldu leikjavélar í dag og fylgir X-Box 360 þar á eftir. Svo í því þriðja er Playstation 3 vélin sem hefur heldur betur aukið við sig í sölu og verður gaman að sjá meira af þessu stíði þegar lengra á líður.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Fólk hefur ekki verið lengi að grípa í eina Wii vél yfir jólakaupin.

Nýtt myndband úr Super Smash Bros. BRAWL

Og nú snúum við okkur að heitu myndbandi eftir jólamatinn…

Super Smash Brother: BRAWL er eitt af þeim leikjum sem Nintendo aðdáendur hafa beðið mest spenntir yfir og er engin furða á því. Nú á dögum kom út nýtt myndband úr leiknum sem sýnir úr "advanture mode" sem hægt verður að spila í leiknum. Leikurinn lúkkar gríðarlega vel og verður gaman að sjá meira af honum þegar nær að dregur. Ekki er vitað nákvæmleg hvenær leikurinn mun svo koma út hingað í Evrópu en við munum aðsjálfsögðu fylgjast vel með því.

Hér má sjá nýja trailerinn úr leiknum: