Það eru ýmsir gallar sem sleppa í gegn í lokaútgáfur leikja en sem betur fer eru flestir leikir lausir við slíkt. Því miður á þetta ekki við um Assassin's Creed frá Ubisoft, sem hefur fengið á sig þónokkra gagnrýni fyrir að vera síður en svo gallalaus. Það eru þó sumir gallar sem eru skondnari en aðrir eins og eftirfarandi myndband sýnir:
Gallinn sem hér sést kemur eingöngu fram í Xbox 360 útgáfunni og einungis þegar fleiri en ein fjarstýring eru tengdar við vélina. Eins og myndbandið sýnir birtist á skjánum klón af Altaïr, aðalpersónu leiksins, sem hermir nákvæmlega eftir frummyndinni sinni. Þeir eru þó ekki sérlega hrifnir af hvor öðrum því auðvelt er að drepa eftirmyndina, sem veldur því vitaskuld að spilandinn neyðist til að loada leiknum.
Hér getið þið svo séð annað myndband af þessum sama galla, nema núna hefur aðeins meira fjör færst í leikinn…
Heimild: Kotaku
Kveðja,
GameTíví



Það eru líka margir gallar í Assassin s Creed leiknum í PS3 en aðallega grafíks gallar sem myndast við dauða gaura og líka þegar maður gerir bardagatrikk og sérstakar hreyfingar… maður var líka var við svona í Resistance: Fall Of Man en þá voru svona smáatriði illa gerð en oft mynduðust skondin atvik. Bara að segja mína sögu af hasarleikjum í PS3, en eiginlega eru þetta einu gallarnir og að þessu undanteknu eru þetta 2 toppklassaleikir
Þetta er án efa fyndnustu gallar í heimi, að þetta skuli vera hægt að setja þetta inn sem galli.
hahaha fyndið!! BTW GEEEEEÐveikir bolir hjá ykkur í þættinum, hvar fær mar svona PORTAL boli??
Já, þessi leikur sýnist vera algjör snilld. En kemur hann bara út á PS3 og Xbox360? Á hann ekki líka að koma út á PC???
Hann kemur út á PC síðar á næsta ári.
Flott, en þá seint á næsta ári eða hvað?
Samkvæmt Gamespot.com, þá er talað um að hann komi fyrsta fjórðungs næsta árs sem gæti verið svona febrúar til mars. Ekki vitað dagsetningu enn.
assassins creed er snild
í ps3 vélini
og frábærir þætir hjá
Game tivi go game tivi
ég er búin að klára leikin og hann er alveg skemtilegur
sjestaklega að hoppa
á milli húsa og flía
verðina.Bara að seija
mína skoðun um assassins creed(: