Mark Rein hjá Epic Games hefur staðfest að Unreal Tournament 3 komi ekki út á PlayStation 3 hér í Evrópu fyrr en í byrjun næsta árs. Leikurinn fór á gull nú í vikunni og verður gefinn út í Bandaríkjunum 11. desember næstkomandi.
Ástæðan fyrir seinkun leiksins hér í Evrópu er einfaldlega sú að leikir þurfa að fara í gegnum lengra vottunarferli vegna þess að hann er gefinn út á fleiri en einu tungumáli.
Rein gerir ráð fyrir að leikurinn komi út í Evrópu í janúar eða febrúar, en ekkert hefur enn verið staðfest í þeim efnum. Línurnar ættu þó að skýrast á næstu vikum og við ættum þá að fá nákvæman útgáfudag.
Leikurinn er kominn út á PC og er væntanlegur á Xbox 360 einhvern tímann á næsta ári. Þegar Epic Games ákveða að halda áfram með framleiðslu leiksins, það er að segja, en þeir ákváðu að leggja hana á hilluna og einbeita sér að PS3 og PC útgáfunum í staðinn.
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Pew pew og allt það.






Nýleg comment