- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Killzone 2 BETA prufun á næsta ári

Lítið hefur heyrst frá Sony um þessar mundir af leiknum Killzone 2 sem var sýndur í spilanlegri útgáfu seinast á Leipzig sýningunni í Þýskalandi. Guerrilla Games, framleiðendur leiksins hafa lofað því að gefa út BETA prufu fyrir fjölspilunina í leiknum en geta því miður ekki staðfest nákvæmlega hvenær hún á eftir að koma.

Sony Computer Entertainment America hafa verið spurðir að því hvort það væri einhverjar nánari upplýsingar af beta prufuninni. Þeir vildu ekki tjá sig um það nema það að hún kæmi á næsta ári. "Við erum að vonast til þess að gera beta prufu en ég held að það verði ekkert tilbúið fyrr en að þessu ári lýkur. Þetta er eitthvað sem við erum að vinna að fyrir næsta ár", sagði Alex Armour hjá SCEA.

Það þótti furðulegt að þeir voru þegar búnir að tilkynna betuna en voru ekki búnir að staðfesta hana. Þannig að það verða kannski engar nýjar uppfærslur af leiknum sem eftir er af þessu ári. En leikurinn er svo væntanlegur einhverntímann á næsta ári aðeins á PS3.

Heimildir: 1up.com

Kveðja,
Game Tíví

Hér má sjá trailer úr leiknum frá E3 2007:

2 Responses to “Killzone 2 BETA prufun á næsta ári”


  • Þið ættuð að hafa svona FAQ það er alltaf verið að spyrja ykkur um eikkað O.O

  • strákar! síðasti þáttur……Assassin s creed átti að fá 9.0! það eina sem dregur hann niður er hann hefur lítið replay value. annað heldur en Stranglehold demóið ,í Playstation Store, sem hefur mesta replay value sem ég hef séð.
    takk fyrir!

Comments are currently closed.