- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for November, 2007

Killzone 2 BETA prufun á næsta ári

Lítið hefur heyrst frá Sony um þessar mundir af leiknum Killzone 2 sem var sýndur í spilanlegri útgáfu seinast á Leipzig sýningunni í Þýskalandi. Guerrilla Games, framleiðendur leiksins hafa lofað því að gefa út BETA prufu fyrir fjölspilunina í leiknum en geta því miður ekki staðfest nákvæmlega hvenær hún á eftir að koma.

Sony Computer Entertainment America hafa verið spurðir að því hvort það væri einhverjar nánari upplýsingar af beta prufuninni. Þeir vildu ekki tjá sig um það nema það að hún kæmi á næsta ári. "Við erum að vonast til þess að gera beta prufu en ég held að það verði ekkert tilbúið fyrr en að þessu ári lýkur. Þetta er eitthvað sem við erum að vinna að fyrir næsta ár", sagði Alex Armour hjá SCEA.

Það þótti furðulegt að þeir voru þegar búnir að tilkynna betuna en voru ekki búnir að staðfesta hana. Þannig að það verða kannski engar nýjar uppfærslur af leiknum sem eftir er af þessu ári. En leikurinn er svo væntanlegur einhverntímann á næsta ári aðeins á PS3.

Heimildir: 1up.com

Kveðja,
Game Tíví

Hér má sjá trailer úr leiknum frá E3 2007:

MGS4 verður að seljast í milljón eintökum á fyrsta degi

Konami fyrirtækið sem gerir leikinn Metal Gear Solid 4 hafa svo sannarlega lent í vandræðum. Fyrir hönd Sony þá mun hann halda áfram að vera einka leikur fyrir þá á PS3. Það kostar mjög mikla peninga að gera þennan leik og Konami eru í miklum vanda að leysa það mál.

Spurt var Konami fyrirtækið hvernig þeir ætluðu að fá peningana til baka eða græða á leiknum sjálfum. Ryan Payton, aðstoðarmaður í framleiðslu hjá Konami tilkynnti það að leikurinn þyrfti að seljast í eittmilljón eintökum fyrsta daginn til þess að viðhalda jafnvægið í kostnaðinum sem er nokkuð slatti. Til fróðleiks þyrfti leikurinn að seljast meiri en 50% hjá öllum PS3 eigendum í Bandaríkjunum.

Þetta virðist eina leiðinn fyrir þá til þess að halda einkaréttinum algjörlega á PS3 og það verður spennandi að sjá hvort þeim takist það til þess að bjarga sér úr fjárhagslega vandræðunum. Ef leikur á borð við Uncharted: Drake´s Fortune kosti í kringum 20 milljónir dollara, þá er ekki vitað hvað það myndi kosta fyrir þá. Það er miklu dýpri saga á bakvið MGS4 og Konami en þessi svör verða örugglega ekki sögð nema eftir að leikurinn verði löngu gefinn út. 

MGS4 er áætlaður í mars á næst ári og verður einungis gefinn út á PS3 vélina sem hér með stendur.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Solid Snake lúkkar vel í HD gæðum eins og hér sést.

Kóverið af Grand Theft Auto IV afhjúpað

Rockstar völdu heldur óhefðbundna leið þegar þeir afhjúpuðu kápuna á Grand Theft Auto IV í gær. Þeir völdu þá óvenjulegu leið að birta myndband sem sýnir hvar nokkrir menn vinna í því að mála risastóra myndina á vegg.

Þá tilkynntu þeir að nýtt myndband úr leiknum, "Move up, ladies," væri væntanlegt 12. desember næstkomandi. Hann verður birtur á heimasíðu leiksins þegar þar að kemur.

 

Stórfurðulegur galli í Xbox 360 útgáfunni af Assassin’s Creed

Það eru ýmsir gallar sem sleppa í gegn í lokaútgáfur leikja en sem betur fer eru flestir leikir lausir við slíkt. Því miður á þetta ekki við um Assassin's Creed frá Ubisoft, sem hefur fengið á sig þónokkra gagnrýni fyrir að vera síður en svo gallalaus. Það eru þó sumir gallar sem eru skondnari en aðrir eins og eftirfarandi myndband sýnir:

 

Gallinn sem hér sést kemur eingöngu fram í Xbox 360 útgáfunni og einungis þegar fleiri en ein fjarstýring eru tengdar við vélina. Eins og myndbandið sýnir birtist á skjánum klón af Altaïr, aðalpersónu leiksins, sem hermir nákvæmlega eftir frummyndinni sinni. Þeir eru þó ekki sérlega hrifnir af hvor öðrum því auðvelt er að drepa eftirmyndina, sem veldur því vitaskuld að spilandinn neyðist til að loada leiknum.

Hér getið þið svo séð annað myndband af þessum sama galla, nema núna hefur aðeins meira fjör færst í leikinn…

Heimild: Kotaku

Kveðja,
GameTíví

Nintendo hafa grætt 33 milljónir dollara af Virtual Console

Markaðsfulltrúi Nintendo, Shinji Hatano hefur nú gefið upp þær tölur sem Nintendo hafa selt í samstörfum við NTT í gegnum "Virtual Console" frá því að þeir gáfu út vélina fyrir rúm ári. Samkvæmt niðurstöðum þeirra hafa þeir selt um það bil fyrir 33 milljón dollara í gegnum Virtual Console.

Shinji Hatano sagði svo frá því að þeir væru ekki vissir hvort það væri í raun gott. "Við erum hér með stendur ekki vissir um hvort það sé mikið eða lítið. Þetta eru allavegana ekki slæmar tölur", sagði Shinjo Hatano. Hann sagði einnig frá því að það hafa verið um 7.8 milljón klassískir eða gamlir leikir sem hafa verið niðurhladdir í gegnum Virtual Console. Það er ekki vitað hvað Nintendo mæla með, en 33 milljónir dollarar er ekkert svo slæmt og er þetta um 2013 milljón íslenskra króna.

Samningur á milli Nintendo og NTT netþónustuna, er svo sagt að þeir munu svo þróa verk sín í Japan fyrir undirbúning á WiiWare stöðinni sem er væntanlegt í mars fyrir Nintendo Wii á næsta ári. Nintendo og NTT munu svo auka við internet stuðning fyrir Wii eigendur og bjóða upp á að kaupa Wii leiki fyrir eigendur á betra verði í gegnum.

Heimildir: 1up.com


Nintendo persónurnar geta svo sannarlega fagnað þessum viðburði

Orðrómar berast að nýjum Leisure Suit Larry leik

Það hafa verið orðrómar um að nýr Leisure Suit Larry leikur sé í vinnslu. Þegar spurt var Sierra fyrirtækið um hvort eitthvað væri í gangi hjá þeim með leikinn vildu þeir engu svara við því.

Sá sem varð ábyrgur fyrir að koma þessum fréttum af stað var grínistinn Artie Lange. Hann var að grínast um að hann hafi verið nýbúinn að tala fyrir persónu í nýjum leik sem heitir persónan "Big Al". Það er ekki vitað afhveju hann ætti að vera ljúga um þetta en það er því miður engar staðfestingar um þetta ennþá.

Leisure Suit Larry er ævintýraleikur og er þekktur fyrir hvað það varðar um dónaskap eða fullorðins húmor. Hann hæfir aðeins fyrir eldri spilendur og er ekki fyrir börn. Hann hefur verið mjög vinsæll frá fyrstu leikjunum á PC, en sá nýjasti í seríunni kom út árið 2004 á PC, PS2 og X-Box. Ekki væri slæmt að sjá karlinn í HD gæðum.

Eins og er þá eru þetta aðeins orðrómar og hefur ekkert verið staðfest um þá ennþá.

Heimildir: Eurogamer

Kveðja,
Game Tíví


"Eru þið að leita að mér?"

Nýr aukapakki fyrir Warhawk væntanlegur í desember

Sony menn hafa nú staðfest það að nýr aukapakki fyrir multiplayerleikinn Warhawk sé væntanlegur í næsta mánuði.  Nýji aukapakkinn mun bera nafnið "Omega Dawn" og inniheldur hann 5 ný borð með ákveðnu þema í hverju borði. Eitt af þeim mun verða svo stærsta hingað til segja Sony menn og lofa þeir góðu með nýju borðunum.

Einnig mun svo nýji pakkinn innihalda nýjar vélar og annað slíkt. Eitt af því nýja er KT-424 orrustu-flutningaskip sem verður hægt að fylla með allt að sjö stríðsmönnum, einn flugmaður og eitt farartæki, þetta gæti komið sér verulega að gagni. Flutningaskipið er svo vopnað með hinum ótrlúlegum byssum "MBEC-3 Heavy Support Cannon", hjómar ansi vel og svo er nýtt faratæki sem verður hægt að nota í öllu nýju borðunum sem kemur með pakkanum og mun það koma að gagni í öllum keppnunum sem Warhawk býður uppá.

Þessi nýji aukapakki, Omega Dawn kemur út í desember og verður hægt að niðurhlaða honum í gegnum PSN-búðirnar. Ekki hefur ennþá verið sett verð á pakkan en vonandi verður það sanngjarnt verð.

Heimildir: Joystiq

Kveðja,
Game Tíví


Það verður nóg af orrustum og skotum í nýja aukapakkanum fyrir Warhawk

Hljómsveit kærir Activision fyrir of nákvæma ábreiðu af lagi sínu

Hljómsveitin The Romantics, frá Detroit, er ekki par sátt við útgefandann Activision og leikjaframleiðandann Harmonix þessa dagana. Þegar Activision fengu leyfi fyrir því að nota lag eftir hljómsveitina í Guitar Hero Encore: Rock the 80s létu þeir Soundwave Group taka það upp fyrir sig í góðri trú um að þeir væru með leyfi fyrir því að taka upp eins nákvæma eftirlíkingu af laginu og mögulegt er.

Svo er hins vegar ekki raunin. The Romantics hafa ákveðið að kæra Activision, Harmonix og Soundwave Group fyrir að taka upp lag sem er of líkt því upprunalega og nota það í leiknum. Hljómsveitin hefur farið fram á að fyrirtækin borgi sér skaðabætur vegna athæfisins og að leikurinn verði tekinn úr hillum verslana og lagið fjarlægt úr honum.

"Ég var í öngum mínum yfir þessu því hljómsveitin hefur unnið hörðum höndum í áraraðir við að skapa sér og nota frábrugðinn hljóm [frá öðrum hljómsveitum]," sagði Wally Palmer, forsprakki The Romantics. Hann óttast að leikjaunnendur tengi hljómsveitina við lagið í leiknum þótt það sé ekki flutt af þeim og það vill hann alls ekki sjá.

Ekki hefur komið fram hvenær málið fer fyrir dóm.

Heimild: Shacknews

Kveðja,
GameTíví

Lara Croft sveiflar sér yfir á Wii í næstu viku

Eidos hefur staðfest að nýjasta ævintýri Löru Croft (ef litið er framhjá því að þetta er endurgerð af fyrsta leiknum), Tomb Raider: Anniversary, komi út á föstudaginn í næstu viku. Leikurinn var gefinn út á Xbox Live nú um helgina og er hann nú þegar til fyrir PSP, PlayStation 2 og PC en nú er sem sagt komið að Wii eigendum að eiga góða stund með Löru Croft.

Tomb Raider: Anniversary er, eins og áður hefur komið fram, endurgerð á fyrsta leiknum. Leikurinn notar sömu vél og Tomb Raider Legend og hefur því bæði leikspilun og grafík verið stórbætt.

11 ár eru síðan Lara Croft tók þátt í sínu fyrsta ævintýri og átti Tomb Raider Anniversary reyndar upphaflega að koma út á 10 ára afmæli hennar en tafir ollu því að hann kom út á 11. ári hennar í staðinn…

Wii útgáfan er ekki ósvipuð Xbox 360 og PlayStation 2 útgáfunum að öðru leyti en að búið er að bæta stuðning við Wii fjarstýringuna. Leikurinn fékk glimrandi dóma og því er ljóst að hér er um enn einn "must-buy" leikinn að ræða.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Loksins loksins: Shivering Isles á PS3

Eigendur PS3 útgáfunnar af The Elder Scrolls IV: Oblivion hafa loksins fengið ærna ástæðu til að fagna því Bethesda Softworks hefur tilkynnt að aukapakkinn fyrir Oblivion, Shivering Isles, verður fáanlegur fyrir PlayStation 3 yfir bandarísku PSN verslunina frá og með fimmtudeginum 30. nóvember.

Aukapakkinn kom upphaflega í mars 2007, í kringum svipað leyti og Oblivion kom út fyrir PlayStation 3, en því miður tókst ekki að færa leikinn yfir í tæka tíð. Útgáfa aukapakkans yfir PlayStation Network hefur lent í miklum töfum vegna ýmissa tæknilegra örðugleika í kringum netþjónustu Sony en Bethesda virðast hafa loksins yfirstigið þau.

Aukapakkinn býður upp á um 30 til 40 klukkustundir í leikspilun og gerist í "Realm of Madness" þar sem kolbrjálaður prins ræður ríkjum. Realm of Madness er um það bil 25% af heildarstærð Cyrodiil og hefur talsvert öðruvísi landslag. Þá inniheldur aukapakkinn 10 ný skrímsli, 32 nýjar tegundir af sveppum, 200 ný vopn og um 80 nýjar brynjur og klæði.

Ekki liggur fyrir hvenær aukapakkinn kemur í Evrópsku verslunina eða hvort aukapakkinn úr Bandarísku versluninni virki með Evrópsku útgáfunni af leiknum. Þeir sem ekki eiga Oblivion á PS3 nú þegar ættu þó að sitja á sér enn um sinn því Game of the Year Edition, sem meðal annars inniheldur þennan forláta aukapakka, er væntanleg í desember.

Þess má geta að aukapakkinn verður einnig fáanlegur á sér disk fyrir bæði Xbox 360 og PS3, en hvenær hann kemur til Evrópu er enn óstaðfest.

Heimild: 1UP.com