Koji Igarashi, aka IGA, heilinn á bak við Castlevania seríuna undanfarin ár, hefur staðfest að nýr leikur sé í bígerð fyrir Nintendo DS. Þessa stundina er IGA og félagar hjá Konami að vinna að Castlevania: Dracula X Chronicles fyrir PSP, en þegar því er lokið munu þeir demba sér í DS útgáfuna af fullum krafti.
Síðustu tveir Castlevania leikir fyrir DS, Castlevania: Dawn of Sorrow og Castlevania: Portrait of Ruin, nutu mikillar hylli aðdáenda og gagnrýnenda enda frábærir leikir hér á ferð (leikir sem þið ættuð að kíkja á ef þið hafið ekki gert það nú þegar!). Leikirnir gerast oftar en ekki í kastala Dracula greifa og þurfa spilendur að setja sig í hlutverk persóna sem eru almennt ekkert sáttar með það að eitthvað illt sé á kreiki.
Engar upplýsingar eru til um þennan nýja DS leik, enda hefur hann ekki enn verið afhjúpaður af Konami, en fyrst Igarashi er búinn að fullyrða að hann sé væntanlegur þá er vart hægt að hundsa tilvist hans. Það verður spennandi að sjá hvort hann verður jafn góður og fyrri leikir … hvaða vitleysa, auðvitað verður hann frábær!
Heimildir: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví







Nýleg comment