BioWare tilkynntu í dag að þeir væru komnir í samstarf við LucasArts um þróun á nýjum tölvuleik fyrir síðarnefnda fyrirtækið. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem framleiðandi Mass Effect og Baldur's Gate fer í samstarf við LucasArts því fyrir nokkrum árum gat svipað samstarf af sér leikinn Star Wars: Knights of the Old Republic, frábæran hlutverkaleik í alla staði sem kom út á PC og Xbox.
Nýja samstarfið þykir renna stoðum undir orðróma þess efnis að BioWare sé í rauninni að gera Star Wars fjölspilunarhlutverkaleik (MMORPG) sem gerist um svipað leyti og Knights of the Old Republic leikirnir. Eins og sumir vita er til annar Star Wars MMORPG, Star Wars Galaxies, en vinsældir hans hafa farið dvínandi undanfarið og ekki bætir úr skák að leiknum hafi fyrir ekki svo löngu síðan verið breytt svo mikið að jafnvelhörðustu spilendur fengu sig fullsadda af leiknum. Áts.
Það er reyndar alvitað að BioWare séu að vinna að fjölspilunarhlutverkaleik og það er líklega minnst áhætta í því að þróa slíkan leik byggðan á einhverju merki sem margir, ef ekki allir, þekkja. Þeir eru meira að segja að fara sömu leið í lófaleikjatölvudeildinni því fyrsti lófaleikjatölvuleikur BioWare verður hlutverkaleikur um broddgöltinn Sonic.
Það er bara spurning um að bíða og vona að þessir orðómar séu sannir.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví

Star Wars: Knights of the Old Republic er afsprengi samstarfs BioWare og LucasArts



f**k this, MASS EFFECT rústar þessu