- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Afrituð spil virka með Eye of Judgement

Þegar Eye of Judgement kom fyrst fram á sjónarsviðið voru margir skeptískir á að Sony gæti haldið fólki frá því að afrita spilin. Þeir blésu þessar efasemdir í burtu og staðhæfðu að Eye of Judgement spilin væru prentuð með sérstöku bleki sem ómögulegt væri að afrita. Og þessu höfum við trúað… þangað til núna.

Það var lesandi Kotaku sem ákvað að gamni sínu að prenta út Eye of Judgement spil af Penny Arcade síðunni með litprentaranum sínum og athuga hvort spilið myndi virka í leiknum. Vélin sprakk ekki í loft upp, leikurinn skammaði hann ekki, heldur virkaði það. Ritstjórar Kotaku voru þó skeptískir á þetta en léku samt sem áður leikinn eftir og prentuðu út spil með 3.000 króna litprentara. Það svínvirkaði. Leikurinn skráði spilið meira að segja í online spilastokkinn þeirra án vandkvæða eða andmæla.

Úps. Eitthvað virðist hafa farið úrskeiðis hjá Sony. Það er því nokkuð ljóst að þegar fólk byrjar að spila leikinn yfir PlayStation Network er það alltaf í hættu á að lenda á móti einhverjum óheiðarlegum andstæðingi enda er nær ómögulegt að stöðva svindl að þessu tagi. Það þarf því að velja andstæðinga sína vel, helst úr röðum persónulegra vina, því heiðarlegur spilandi með fulllöglegan spilastokk gæti átt erfitt uppdráttar á móti svindlandi hrotta…

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Vonandi eru þessir að spila með löglegum spilastokkum

1 Response to “Afrituð spil virka með Eye of Judgement”


Comments are currently closed.