Heyrðuð þið þetta? Þetta hljómar eins og önnur endurkoma Jesú Krists og að allur heimurinn fagni honum…
En svo er ekki. Þetta eru bara æstir Super Smash Bros. aðdáendur að fagna nýjasta fídusnum í Super Smash Bros. Brawl. Í gær afhjúpaði Nintendo borðabyggi (e. stage editor) fyrir nýjasta Super Smash Bros. leikinn en eins og nafnið bendir til eiga spilendur að nota hann til þess að skapa ný borð.
Borðabyggirinn mun fylgja leiknum þegar hann kemur út á næsta ári og er í raun ansi einfaldur í notkun. Fyrst velur fólk bakgrunn og tónlist og svo á það að velja úr hlutum til þess að bæta inn í það – stigar, kubbar, hvað sem er (svo fremur sem það er í leiknum). Að lokum er borðið nefnt og vistað. Þið getið séð myndir úr forritinu á Smash Bros. DOJO!!, heimasíðu leiksins.
Það besta er að hægt verður að deila borðunum með öðrum. Viltu sýna vini þínum afraksturinn? Sendu honum það! Viltu sjá afrakstur vina þinna? Fáið þá til að senda þér borðin sín! Og ef þú vilt láta vekja athygli á þér geturðu sent Nintendo borðið. Á hverjum degi velja þeir eitt borð til að senda út til allra Super Smash Bros. Brawl eigenda.
Þetta er ekki eina nýjungin sem hefur sprottið upp undanfarið því einnig verður hægt að vista, sækja og senda replays svo þú getir skoðað gamla bardaga, kíkt á leiki vina þinna eða hugsanlega hlaðið niður heimsmeistaraleikjum og horft á frá öllum hliðum.
Fyrir þá sem hafa búið undir grjóti undanfarin ár og vita ekki hvað Super Smash Bros. Brawl er þá er það slagsmálaleikur fyrir Nintendo Wii þar sem leikmenn geta spilað Nintendo persónur á borð við Mario, Bowser, Fox McCloud og Pikachu og látið þá berjast við hvorn annan. Þá verða einnig nokkrar gestapersónur og nú þegar er búið að bóka Solid Snake úr Metal Gear Solid og hinn fræga broddgölt Sonic í leikinn og fleiri munu líklega mæta til leiks áður en langt um líður.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Stage creatorinn í Super Smash Bros. Brawl lúkkar…
Nýleg comment