Líklega eru ekki margir af yngri kynslóðinni sem kannast við Sex Pistols, en þeir sem voru vakandi á síðari hluta áttunda áratugarins ættu að kannast við hljómsveitina. Hún vakti mikla athygli, sér í lagi fyrir stefnu sína um að útbreiða anarkisma og þeim gekk reyndar alveg furðu vel við það.
Núna ætla þeir meðlimir sveitarinnar sem enn eru lifandi í dag að koma saman aftur og hljóðrita lag saman í fyrsta sinn í þrjátíu ár. Nú hljóta sumir að spyrja "en hvert er tilefnið og hvað tengist það tölvuleikjum?"
Jú, ástæðan fyrir þessari skyndilegu ákvörðun er að þeir vilja endurhljóðrita Anarchy in the UK sérstaklega fyrir Guitar Hero III sem væntanlegur er seinna á árinu. Þegar Activision komust að því að það væru ekki til upprunalegar upptökur af Anarchy in the UK þá buðu þeir sveitinni í stúdíó til þess að taka nokkur lög upp aftur, sem þeir og þáðu.
Guitar Hero verður sérstakur stuðningsaðili Sex Pistols á tónleikum sem þeir munu halda 8. nóvember næstkomandi.
Meðlimir sveitarinnar eru alls kostar ekki ósáttir við að vera með lag í tölvuleik. "Mér finnst allt í lagi að bæta við smá anarkisma í tölvuleik," sagði Johnny Rotten, forsprakki sveitarinnar. Steve Jones, gítarleikari sveitarinnar, sagðist vera hrifinn af Guitar Hero "vegna þess að krakkar vina minna eru hrifnir af honum. Mér líkar við það sem krökkum líkar við."
Guitar Hero III er væntanlegur seinna á árinu á allar leikjatölvur sem máli skipta.
Heimild: Kotaku
Kveðja,
GameTíví
Sex Pistols…



0 Responses to “Sex Pistols snúa aftur í hljóðver fyrir Guitar Hero III”