Geturðu ekki beðið eftir að spila Pro Evolution Soccer 2008? Hvers vegna ekki að prófa nýja PC demóið?
Demóið er loksins komið á veraldarvefinn og vegur um 1126 megabæti. Hægt er að velja á milli sex landsliða og spila fimm mínútna leik.
Leikurinn sjálfur er væntanlegur á PC, PS2, PS3 og Xbox 360 fyrir lok október, á PSP og DS í nóvember og á Nintendo Wii einhvern tímann á næsta ári.
Eftir hverju eruð þið að bíða? Skellið ykkur á 3dgamers og sækið það!!
Þá má annars geta að það er hægt að nálgast það á Xbox 360 í gegnum Xbox Live.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Fótboltaleikir gerast vart betri.



0 Responses to “PES 2008 PC demó komið á vefinn”