Þá er það komið á hreint….Gametíví þátturinn byrjar aftur eftir gott sumarfrí, en sýningar munu hefjast í byrjun október.
Sverrir og Óli hafa verið að sanka að sér efni og munu bæði eldri og nýir dagskrárliðir skjóta upp kollinum. Félagarnir munu dæma leiki, fá gesti í þáttinn, halda keppni, raunveruleiki, sýna svindl og margt fleira, ásamt nokkrum nýjum liðum sem kynntir verða þegar nær dregur.
Vonumst til að sjá sem flesta í vetur !
Kveðja,
Gametíví

"Gametíví byrjar aftur..þessir tveir eru harðir og grimmir.."




Nýleg comment