- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Jericho bannaður í Þýskalandi

Þýska matsnefndin USK er ansi dugleg við allt sem tengist boðum og bönnum og þegar það kemur að tölvuleikjum virðast þeir extra skotglaðir. Nýjasta uppátæki bæjara er að banna útgáfu á hryllingsleiknum Jericho í Þýskalandi.

Jericho er þróaður af Mercury Steam með aðstoð frá Clive Barker, kvikmyndagerðarmanninum og rithöfundinum fræga sem færði okkur meðal annars kvikmyndina Hellraiser og Abarat bókaflokknn. Leikurinn gerist í Khali eyðimörkinni þar sem hópur hermanna sem eru sérþjálfaðir í hinu yfirnáttúrulega berst við ógurleg skrímsli frá örófi alda.

Codemasters, útgefendur leiksins, hafa staðfest að þeir ætli sér ekki að beygja sig og hneigja fyrir USK og hafa ákveðið að leiknum verði ekki breytt í því skyni að fá hann útgefinn í Bretlandi. Þeir vilji ekki skemma listræna sýn Barkers með því að fara í einhverjar stórvægilegar breytingar.

Jericho er alls ekki fyrsti leikurinn sem USK bannar því meðal fleiri leikja sem hafa fengið bannhamarinn eru Gears of War, Manhunt og Return to Castle Wolfenstein.

Jericho er væntanlegur á PC, Xbox 360 og PS3 seinna á þessu ári.

Heimild: Next Generation

Kveðja,
GameTíví


Þessi hressi gaur er í Jericho.

0 Responses to “Jericho bannaður í Þýskalandi”


Comments are currently closed.