Halo 3 kom, sá og sigraði ef marka má fyrstu tölur frá Microsoft. Samkvæmt útgáfurisanum seldist leikurinn í svo mörgum eintökum að veltan af sölunni á honum í Bandaríkjunum einum saman var um 170 milljónir dollara fyrstu vikuna. Til samanburðar má geta að Halo 2 velti um 125 milljónum dollara fyrstu 24 klukkustundirnar eftir útgáfu þegar hann kom út árið 2004.
Það þýðir að Halo 3 velti meiri peningum en síðasta Harry Potter bókin og Spider-Man 3 á fyrsta degi. Ekki er vitað nákvæmlega hversu mörg eintök seldust á fyrstu 24 klukkutímunum en samkvæmt Shane Kim hjá Microsoft voru um 1 milljón Halo 3 leikir spilaðir á fyrstu 20 klukkustundunum.
Nokkrar verslanir hér á landi héldu opnunarteiti í tilefni útgáfu leiksins. Talið er að um 170 manns hafi mætt niður í BT Skeifunni síðasta þriðjudagskvöld, en þar vorum við GameTíví menn og munum við sýna myndbrot og viðtöl frá opnuninni í fyrsta þætti vetrarins sem sýndur verður á fimmtudaginn í næstu viku. Mikið var um dýrðir enda frír matur og gos á boðstólnum fyrir alla sem mættu og alla jafna virtust menn vera ofsalega kátir.
Þá mættu víst um 70 manns niður í MAX og keyptu sér eintak af leiknum góða. Ekki er vitað hversu mörg eintök hafa selst af gripnum hér á landi en líklegt er að þau telji í hundruðum.
Líklega verður langt í það að Halo 3 verði steypt af þessu hásæti sínu enda fáir leikir sem hafa fengið jafn mikla athygli fjölmiðla.
Heimild: Eurogamer
Kveðja,
GameTíví
Master Chief er mættur til þess að klára bardagann í þriðja og síðasta Halo leiknum.




Demóið mun innihalda eitt borð ásamt einhverju fleira góðgæti og öllu er þessu pakkað á einn UMD disk. Það er þó vonarglæta því Ready At Dawn hefur lofað restinni Ameríkunni demóinu fyrir árslok og þar sem PSP er ekki svæðislæst, þá…


Nýleg comment