- Ekkert venjulegt sjónvarp

Síður Skjásins


Monthly Archive for August, 2007

Page 2 of 2

Call of Duty 4 fær útgáfudag

Activision hefur staðfest að Call of Duty 4 mun koma út í Evrópu
þann 9. nóvember næstkomandi á PC, Xbox 360 og PlayStation 3.

Þeir hafa reyndar ekki staðfest þetta opinberlega en háttsettur
yfirmaður fyrirtækisins staðhæfði þetta á blaðamannafundi í síðustu
viku. Activision í Bretlandi vilja eingöngu staðfesta að hann komi
í “vetur”.

Call of Duty 4 hefur vakið mikla athygli, sér í lagi fyrir að
vera ekki enn að hangsa í kringum seinni heimsstyrjöldina, en Call
of Duty 4 ber undirtitilinn Modern Warfare og gerist í nútímanum.
Já, og grafíkin hefur fengið alveg lofsamlega dóma frá þeim sem
hafa séð hann, enda lítur leikurinn hreint stórkostlega út.

Eins og áður sagði þá mun Call of Duty 4 líklega koma til Evrópu
9. nóvember næstkomandi. Vonum að þetta reynist rétt!

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

Ný Lord of the Rings Online uppfærsla væntanleg í næstu viku

Komin/n með ógeð af öllu sem hægt er að gera í Lord of the Rings
Online: Shadows of Angmar? Búin/n að fá nóg af Book 9: Shores of
Evendim? Óttastu ekki! Þeir hjá Codemasters Online Gaming eru búnir
að dekka allt. Nýr aukapakki er væntanlegur á þriðjudaginn í næstu
viku og þá verður sko gaman.

Nýi aukapakkinn nefnist Book 10: The City of the Kings og mun
innihalda glænýjan söguþráð til að skríða í gegnum og tengist
einhverri illri konu sem heitir Amarthiel, en kvendið ógurlega
hefur náð palantír í sínar hendur og notar hann nú til að finna
týnda hringinn sinn. Og auðvitað fellur það í hlut leikmanna að
hindra að plön hennar nái fram að ganga.

Nýi söguþráðurinn opnar fyrir meira en 100 ný verkefni og mun
aukapakkinn einnig halda ný skrímsli, nýjar dýflyssur og nýja hluti
til að sækjast eftir. Þá munu leikmenn einnig geta farið í hlutverk
trölls eða rekka gegn vænni summu af örlagastigum (e. Destiny
Points) og barist um Ettenmoors.

Þá geta leikmenn sem eru orðnir leiðir á því að spila alla þá
kynþætti sem hægt er að spila í leiknum tekið sér smá frí og spilað
sem kjúklingur í staðinn. Sem kjúklingur geta leikmenn gengið um
heiminn, leitað að hænsnabúrum og veitt orma. Kannski eitthvað
fleira. Og það besta er að kjúklingur er bara einn af fjölmörgum
húsdýrum sem fólk mun geta spilað í viðbótum framtíðarinnar.

Ofan á þetta allt saman þurfa leikmenn nú að spá í mannorð sitt
því Turbine hafa bætt mannorðskerfi, svipuðu því sem nú þegar
þekkist í World of WarCraft, og því þurfa leikmenn að hugsa sig vel
og vandlega áður en þeir framkvæma því ef mannorð hjá einum hóp
hækkar getur mannorð hjá andstæðum hóp lækkað…

Fleiri fídusar eru væntanlegir með nýju uppfærslunni. Uppfærslan
verður gjaldfrjáls líkt og Book 9: Shores of Evendim og verður hún
gefin út 21. ágúst næstkomandi. Það er því góður tími fyrir fyrrum
spilara að kíkja aftur til Miðgarðs og skoða hvað hefur breyst,
jafnvel þótt það sé ekki nema bara til þess að spilakjúkling!

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Þessi orki er ekki úr The City of the Kings, en
samt…

Hellgate: London fær útgáfudag

Skrímsli úr myrkustu djúpum helvítis hafa smátt og smátt verið
að finna sér leið inn í hinn mannlega heim undanfarin 18 ár. London
er lítið annað en skugginn af þeirri stórborg sem hún var, djöflar
og árar ráfa um götur hennar og í miðri borginni stendur opið hlið
til helvítis. En ekki er öll von úti. Neðanjarðalestakerfi
borgarinnar halda djöflum í skefjum og þar halda verndarar mannlegs
lífs sig, tilbúnir að fara yfir á yfirborðið og berjast við alla þá
óvini sem þar er að finna, vopnaðir sverðum, byssum, göldrum,
lásabogum, hverju sem vinnur mein á þessum ófrýnilegu verum.

Þannig hljómar söguþráðurinn í Hellgate: London, fyrsta leik
Flagship Studios. Fyrirtækið var stofnað af lykilframleiðendum
Diablo leikjanna sem gáfust upp á afskiptasemi Vivendi hjá Blizzard
og eru nú í samstarfi við Namco-Bandai og Electronic Arts að klára
síðustu metrana fyrir útgáfu leiksins, en nú á dögunum var tilkynnt
að leikurinn muni koma út 2. nóvember næstkomandi hér í Evrópu.

Leikurinn mun bjóða upp á einspilun þar sem fólk getur spilað í
gegnum sögu leiksins. Þá mun það einnig geta spilað í gegnum sögu
leiksins með vinum sínum yfir netið án endurgjalds. Fyrir þá sem
vilja fá meira í áttina að World of WarCraft og öðrum
fjölspilunarleikjum þá er hægt að borga um 10 dollara á mánuði
fyrir guild stuðning, raid content, ný vopn og annað sem er
órjúfanlegur hluti af MMORPG leikjum nútímans.

Hellgate: London kemur eingöngu á PC einkatölvur og er
væntanlegur til Evrópu 2. nóvember, eins og áður sagði.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví

 

Unreal Tournament 3 á PS3 mun styðja lyklaborð og mús

Það hafa komið upp margar kvartanir frá PC eigendum um að það sé
óþægilegt að spila fyrstu persónu skotleiki á leikjatölvur þar sem
fjarstýringar séu svo ópraktískar í verkið. Þessu hafa margir
console aðdáendur svarað harðlega og fullyrt að leikjatölvur séu
hinir nýju konungar skotleikjanna.

Mark Rein, varaforseti Epic Games, hefur hins vegar ákveðið að
útrýma svona löguðu úr umræðum um Unreal Tournament 3 með því að
tilkynna að PlayStation 3 útgáfan mun styðja bæði spilun með
SIXAXIS fjarstýringunni sem og með lyklaborði og mús. Það eina sem
þarf til þess að gera þetta a la PC er lyklaborð og mús með USB
útgangi. Einfalt?

Til þess að toppa þetta allt saman munu PS3 spilendur ákveðið
hvort þeir leyfi lyklaborð og mús í leikjum sínum eða ekki. Ef þeir
kjósa að spila leikinn með venjulegri fjarstýringu á netinu geta
þeir þar með útilokað að notendur með lyklaborði og mús komist í
leikinn. Eða ekki, ef þeir vilja smá áskorun.

Þetta gerir PS3 útgáfuna bara betri, en búið var að tilkynna að
notendur muni geta hannað sitt eigið efni fyrir leikinn á PC og
spilað í PS3 útgáfunni. Leikurinn er væntanlegur á PlayStation 3 og
PC í nóvember. Þá stefnir allt í það að Xbox 360 og Mac útgáfur af
leiknum muni koma út á næsta ári.

Heimild: Eurogamer

Kveðja,
GameTíví


Pew pew pew…

Veldu nafn á framhaldið af F.E.A.R.

Það er að koma framhald af F.E.A.R., en það mun ekki heita
F.E.A.R. 2. Ástæðan að baki þessu er sú að árið 2004 var
framleiðandi leiksins, Monolith Software, keyptur af Warner Bros.
Interactive Entertainment og á þeim tíma var framleiðsla á F.E.A.R.
í fullum gangi, en sá leikur var á endanum gefinn út af Vivendi
Universal. Þegar leikurinn var tilbúinn riftu Monolith Software
samningi sínum við Vivendi, enda komnir undir nýtt útgáfufyrirtæki.
Monolith héldu öllu sem við kom F.E.A.R…. nema nafninu, sem
Vivendi á.

F.E.A.R. hlaut afar góðar viðtökur þegar hann kom út og það var
alveg við búið að það myndi koma framhald. Fyrir nokkru bauð
fyrirtækið F.E.A.R. samfélaginu að koma með hugmyndir um ný nöfn á
leikinn, og meðal nafna sem voru send inn voru “Bloody Bunger”
(bunger er breskt slanguryrði sem þýðir lygari), Burning Decay (sem
hljómar eins og nafn á metal bandi frá 9. áratugnum), P.I.E. og
Thugmuffins Gangsta Throwdown.

Þau nöfn sem náðu í lokaúrvalið voru eftirfarandi:

  • Dead Echo
  • Project Origin
  • Dark Signal

Monolith Software og Warner Bros. Interactive Entertainment
bjóða nú aðdáendum F.E.A.R. að velja eitt nafn af þessum þremur til
þess að vera titill framhaldsins af F.E.A.R.

Til þess að kjósa þarf að fara á vefsíðu keppinnar,
staðfesta að þú ert eldri en 18 ára, lesa sig til um baksögu
þessara þriggja nafna og að lokum velja það sem ykkur þykir
réttast. Einfalt!

Kveðja,
GameTíví


Alma mun mjög líklega koma við sögu í Project Origin/Dead
Echo/Dark Signal.