Wii er orðin hraðast selda leikjatölva frá upphafi í Bretlandi eftir að sölutölur fóru yfir milljón véla múrinn á einungis 38 vikum. Til samanburðar má nefna að PlayStation 2 seldist í milljón eintökum á 49 vikum og Xbox 360 seldist í sama upplagi á 60 vikum.
Ef marka má Chart Track, sem heldur utan um sölutölur í Bretlandi, á Wii um 68% leikjatölvumarkaðarins þar í landi. Á sama tíma á Nintendo DS 86% af lófaleikjatölvumarkaðnum. Báðar vélarnar seljast enn afar vel og líklega vonar Nintendo að eftirspurnin haldist, eða jafnvel aukist, fram yfir hátíðarnar enda mikill peningur í húfi fyrir fyrirtækið.
Það harðnar svo sannarlega í slagnum á milli leikjatölvuframleiðenda og næstu jól verða afar mikilvæg fyrir Sony, Microsoft og Nintendo, enda fyrstu jólin sem allar leikjatölvur eru á boðstólnum á öllum stærstu markaðssvæðum heimsins í mannsæmandi upplagi. Hver mun standa uppi sem sigurvegari? Við komumst að því … eftir áramót.
Heimild: GamesIndustry.biz
Kveðja,
GameTíví



það er bara eitt hækt að segja um þessa mynd…
LOL XD
Hvenar byrja þættirnir aftur? Þeir voru geðveikt skemtilegir!!!!!
Kv.Sindri
Aðdáandi gametivi!!!!!
það vantar bara svo marga góða leiki á wii einu góðir eru zelda og warioware
Super Mario Galaxy, Metroid Prime 3, Mario Kart og Super Smash Brothers – Brawl.
Nokkrir heitir tittlar sem koma á þessu ári og á því næsta.