Wii eigendur gleðjist, svo virðist sem sumarþurrkarnir séu loksina að taka enda. Eftir afar slakt sumar með einungis Resident Evil 4 og Trauma Center: Second Opinion til þess að slökkva þorsta Wii eigenda þá virðist Nintendo ætla að gefa okkur glaðning í október og nóvember.
Samus Aran mun snúa aftur enn eina ferðina í glænýju ævintýri, Metroid Prime 3: Corruption. Leikurinn gerist 6 mánuðum á eftir Metroid Prime 2: Echoes og í þetta sinn kemst Samus í þann krappann þegar hún er að rannsaka tölvuárás á tölvu sem nefnist einfaldlega Aurora Unit. Á sama tíma ráðast geimræningjar á eina af geimstöðvum Galactic Federation til þess að bæta við allt gamanið. Metroid Prime 3: Corruption verður gefinn út 26. október næstkomandi á Níntendó Víj.
Þeir sem höfðu gaman að The Legend of Zelda: The Wind Waker á GameCube geta einnig glaðst því fyrsta ævintýri Link á Nintendo DS er loksins mætt og er leikurinn, The Legend of Zelda: Phantom Hourglass, framhald af áðurnefndum GameCube leik. Leikurinn er sagður einhver allra flottasti DS leikur sem hingað til hefur sést og hefur fengið lofsamlega dóma. Phantom Hourglass er væntanlegur á Nintendo DS þann 19. október næstkomandi, en fyrir þá sem geta ekki beðið þá er mögulegt að panta leikinn frá Bandaríkjunum þegar hann kemur þar út 1. október.
Fyrir utan þessa tvo staðfestu útgáfudaga þá hefur einnig lekið á netið útgáfulisti yfir komandi Wii titla. Þar kemur meðal annars fram að Super Mario Galaxy mun koma út þann 16. nóvember, en þess má geta að það er einnig afmælisdagur Shigeru Miyamoto, skapara Super Mario seríunnar. Köfunarleikurinn Endless Ocean á víst að koma út 9. nóvember og Resident Evil: Umbrella Chronicles kemur 30. nóvember ef listinn er réttur. Við skulum rétt vona að svo sé því Super Mario Galaxy er leikur sem VERÐUR að koma út eins fljótt og auðið er… annars munu ýmsir aðilar innan leikjaframleiðslustéttarinnar fara að … hverfa.
Heimild: Joystiq
Kveðja,
GameTíví



ok gott með super mario galaxy, og metroid, en akkuru kemur zelda ekki á wii?!
Hann er nýkominn á Wii eða svo og það tekur nokkuð langan tíma að hanna þá leiki.
það er bara að fara að styttast í super mario galaxy
virka amerískir ds leikir á evróskum tölvum ?
Já, Nintendo hafa alltaf haft Gameboy og DS region Free. Þannig já.